Content

26.1.2010

Glæsilegur árangur 5. flokks kvenna í Safamýri, eldra ár

Stelpurnar léku á fyrsta móti vetrarins í 1. deild Íslandsmótsins í Vestmannaeyjum helgina 27. - 29. nóvember sl.  Eftir hefðbundna siglingu með Herjólfi byrjaði mótið strax á föstudagseftirmiðdeginum með leik á móti Selfossi. Okkar stelpur unnu öruggan sigur, 11-9, þar sem Ragnheiður var markahæst með 6 mörk. Laugardagurinn var tekinn snemma þar sem fyrsti leikur var klukkan 8 og mættum við Gróttustelpum og unnum við stórsigur 12-3. Vörnin var feikisterk með Vigdísi fremsta í flokki og Tinna varði eins og berserkur. Fljótlega áttum við næsta leik við FH en þær ásamt ÍR hafa reynst okkur einna erfiðastar. Okkar stelpur unnu stærsta sigur á FH frá upphafi, 11-6, þar sem Anna átti stórleik og raðaði inn mörkum og vörnin var sem fyrr gríðar­lega sterk og voru allar stelpurnar okkar fastar fyrir og ekki hægt að gera upp á milli Önnu, Ragnheiðar, Guðrúnar Jennýjar, Röggu, Vigdísar, Tótlu, Birnu, Maríu og Esterar sem allar stóðu sig ótrúlega vel. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út eftir leikinn og ljóst var að liðið var í fantaformi undir stjórn Guðrúnar Gunnars og Gunnars Óla.

Síðasti leikur laugardagsins var svo gegn Íslandsmeisturunum frá því 2009, ÍR, og var sá leikur mjög erfiður. Þar máttum við þola tap, 12-11, en við vorum lengst af yfir í leiknum og leikurinn rosalega jafn. Stelpurnar jöfnuðu sig þó fljótt á tapinu því ljóst var að við vorum komnar í vænlega stöðu fyrir lokaleikinn daginn eftir og eyddum við restinni af deginum í sundi, á Pizza 67 og svo var komið að leik pressuliðsins og landsliðsins. Anna Guðrún okkar lék með pressuliðinu og stóð hún sig mjög vel í þessum skemmtilega leik. Kvöldið endaði svo með stuttu diskóteki enda var mikilvægur leikur morguninn eftir á móti Stjörnunni en okkur nægði að vinna hann til þess að vinna mótið. Sem við og gerðum en það var algjör skyldusigur, smá taugatitringur en sigur engu að síður, 12-10, og gullið og bikarinn var kominn í Safamýrina.

Til hamingju stelpur, frábær árangur!



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l