Content

28.1.2010

Ingunnarskóli LOKAÐUR fyrir æfingar út þessa viku.

Það lak mikið vatn inn í íþróttahús Ingunnarskóla aðfara nótt mánudags og því hefur íþróttahúsið verið ónothæft til íþróttaiðkunar alla þessa viku.  Nú er ljóst að húsið verður ekki nothæft fyrr en í fyrsta lagi á mánud. og er unnið hörðum höndum að því að húsið verði opnað fyrir æfingar á mánud.

Ef það gerist ekki verðar allar æfingar í húsinu færðar í önnur hús í borginni og víðar svo sem í Kórinn í Kópavogi.

Þetta er mikið áfall fyrir okkur FRAMara að missa íþróttahús Ingunnarskóla svona út þar sem þetta er eina æfingarhús okkar í Grafarholti og setur því eðlilega allt í uppnám.

Enginn íþróttaskóli verður því á laugard. fyrir 3-6 ára börn.

Það er von okkar að úr málum  leysist strax eftir helgi og æfingar geti hafist strax á mánud. í Ingunnarskóla.

Knattspyrnufélagið FRAM


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l