Content

29.1.2010

Fylkir - FRAM í kvöld kl. 19:00 - einnig í beinni á SportTV.is

Í kvöld kl. 19:00 mætast Fylkir og FRAM í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu. Leikurinn fer fram í Egilshöll og verður þar að auki í beinni á SportTV.is.

Þetta er annar leikur FRAM í Reykjavíkurmótinu en sá fyrst fór fram síðastliðið sunnudagskvöld þar sem FRAM sigraði Fjölnir með einu marki gegn engu. Halldór Hermann opnaði þar markareikninginn sinn fyrir 2010 með marki á 89. mín.

Hér má sjá stöðuna í riðlinum.

Leikurinn í kvöld verður sem fyrr segir í beinni á SportTV.is og er þetta fraumraun þeirra í beinum útsendingum frá knattspyrnuleikjum. Útsending hefst skömmu fyrir upphafsflaut.

Við hvetjum alla stuðningsmenn FRAM til þess að líta við annaðhvort í Egilshöll eða á SportTV.is.



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l