Content

30.1.2010

FRAM - Fylkir í gær - öruggur sigur

Meistaraflokkur kvenna lék við Fylki í N1 deildinni í gærkvöldi.  Leiknum sem átti að vera á laugardaginn, var flýtt vegna undanúrslitaleikja á EM.

Leikurinn byrjaði í nokkru basli og var staðan um miðjan fyrri hálfleik 5 - 5, en þá skelltu FRAMstúlkur í lás í vörninni og Íris þar fyrir aftan og breyttu stöðunni í 16 - 5 í hálfleik.  Skoruðu því 11 mörk í röð.  Seinni hálfleikur var í nokkru jafnvægi og munurinn alltaf 9 - 11 mörk, þannig að sigurinn var aldrei í hættu.  Þetta var því öruggur sigur 32 - 23.

Sóknarleikurinn var lengst af góður og varnarleikurinn einnig, sérstaklega seinni part fyrri hálfleiks.

Íris var síðan góð í markinu fyrir aftan vörnina með yfir 20 bolta varða.

Mörk FRAM skoruðu:  Stella 9, Karen 5, Marthe 4, Hildur Þ 4, Pavla 4, Guðrún Þóra 3, Ásta 2 og Sigurbjörg 1.

Sigurbjörg Jóhannsdóttir var á leikskýrslu í fyrsta sinn í vetur, eftir erfið meiðsli í fyrra.  Hún spilaði þó ekkert í leiknum en skoraði eitt mark úr víti.

Næsti leikur FRAM er þann 6. febrúar.


« Til baka
  • Sjóva
  • VW
  • BootCamp
  • Sjóvá
  • Skýrr
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • Landsbanki
  • Sjóvá

Leitarv�l