Knattspyrnufélagið Fram hefur ákveðið að setja á laggirnar kvennalið í meistaraflokki fótbolta og kemur liðið til með að hefja göngu sína í 1. deildinni í sumar. Stelpurnar hófu æfingar þann 11. janúar síðast liðin og er góð stemming í hópnum, gríðarlega góð mæting á æfingar, bæði ungar og efnilegar stelpur sem og gamlar kempur sem eru að draga fram skóna að nýju og verður því spennandi að sjá framhaldið. Stelpurnar eru þegar farnar að spila og var fyrsti æfingaleikurinn hjá liðinu nú í vikunnni.
Sigríður Þorláksdóttir hefur verið ráðinn þjálfari liðsins og á dögunum skrifaði hún undir samning þess efnis við Knattspyrnufélagið FRAM
Júlíus Guðmundsson formaður knattspyrnudeildar, Siggar Baxter, Kjartan Ragnarsson varaformaður aðalstjórnar FRAM og leikmenn mfl.kvenna.
Gangi ykkur vel stelpur
Knattspyrnufélagið FRAM