Content

4.2.2010

EHF leikir FRAM stúlkna framundan !

Framstelpur spila tvo leiki um þarnæstu helgi við Króatíska liðið“ RK Tresnjevka“.
Heimaborg liðsins er Zagreb, þær spila í grænum búningum.

Þetta lið hefur á að skipa tveim landsliðskonum;
3 Nina Jukopila 6 June 1983 (1983-06-06) (age 26) 1.73 m 17 17 CroatiaRK Trešnjevka

Og

11 Martina Pavić 27 October 1988 (1988-10-27) (age 21) 1.78 m 0 0 CroatiaRK Trešnjevka
Martina er línumaður.

“ RK Tresnjevka“. Hefur áður komist nokkuð áleiðis í EHF keppninni;

 2006/7 komst liðið í 8 liða úrslit eftir að hafa unnið Ítalskt lið í byrjun, þær unnu svo Pólskt  lið naumlega í 8 liða og  svo  töpuðu þær naumlega fyrir Rúmensku liði í 4ra liða úrslitum.

2007/8  komust þær í 2  umferð , komust  áfram með sigri á Portúgölsku liði, en heimaleiknum töpuðu þær þó með 2 mörkum en unnu útileikinn með 13 mörkum.  Þær duttu svo út í 3ju umferð naumlega fyrir frönsku liði, unnu heimaleikinn með einu en töpuðu útileiknum með 6 mörkum.

Síðasta vetur komust þær  í aðra umferð eftir sigur á sænsku liði en duttu út á móti  sterku frönsku liði Metz frá borginni Mirabell í 3ju umferð. 

Meðalaldur hjá þeim er frekar hár miðað við okkar stelpur, það eru 5 fæddar 1983,  svo eru stelpur 85 model, 86, 2 eru 87 módel, 4 eru 88 módel,  ein 90 módel og annar markvörðurinn er 91 módel og gæti verið að hinn marmaðurinn væri líka 91 módel.  En klárlega eru þarna reynslumiklar stelpur, sem hafa spilað í EHF keppninni amk 4 sinnum síðan 2003. En þá hét liðið: Rukometni Klub Tresnjevka
  

Það er því deginum ljósara að þær Króatísku eru harðduglegar og við munum þurfa að spila okkar besta leik/ leiki ef okkur á að takast að slá þær út.  Til þess að auka líkurnar á því er eitt sem hægt er að gera;

MÆTA  !

Á leikina í FRAM húsinu 13 og 14 febrúar og hvetja okkar stelpur til sigurðs..

Fylgist því vel með næstu daga, meira verður fjallað um leikina á fram.is

Kv, bbb


« Til baka
  • Sjóva
  • VW
  • BootCamp
  • Sjóvá
  • Skýrr
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • Landsbanki
  • Sjóvá

Leitarv�l