Content

5.2.2010

Leikurinn: Haukar-FRAM í mfl. kalla á Ásvöllum 4 feb.

Nú loksins er landsleikjahléi lokið hjá strákunum og fyrsti leikur strákanna okkar í mfl. Síðan í des var við Hauka á heimavelli þeirra, Ásvöllum.  Strákarnir okkar voru mættir suðureftir og hafði nú fjölgað allverulega síðan í desember og fullskipað í flestar stöður. Enn vantar þó Magga Stefáns, og Stebba Stebb, litla stökkmúsin okkar , en þessir tveir eru enn á meiðslalistanum góða.. vonda.

Leikurinn byrjaði ágætlega, Haukastrákar virtust eitthvað utangátta og spil þeirra var næstum því vandræðalegt, eftir 11 mín var 3-6 fyrir Framara.  Forusta okkar hélst í 16 mín en þá jöfnuðu Haukar úr horni, 8-8.
Þá kom bara all slæmur kafli hjá okkur, skref, misstir boltar og léleg færi sem gáfu ekkert og þeir skora næstu 4 mörk og breyta stöðunni í 12-8 og með það tekur Einar leikhlé, enda var þetta ekki eftir hans kokkabókum, né Jóa Fel kokkabókum, enda er hann bakari, Jói sko, ekki Einar, hann er afleitur í húsverkum, nema að tengja vask og klósett, enda alvanur rörasali og salernissmiður.
 Þetta gekk betur, við skorum næstu tvö, og þeir missa mann af velli, Maggi Erlends tók nokkra bolta og var kallinn allgóður í leiknum, 13-10 er nú staðan.  Birkir varði líka vel, og er mér nær að halda að hann hafði bjargað enn einu sinni sínu liði, enda kallinn ekki einhamur.

2 mín eftir, staðan 15-12 og Einar Rafn skorar, og við meira að segja einum færri, Guðmundur Árni var frábær í horninu hjá Haukum og skorar af miklum móð. Við fengum víti, Aron fékk gult fyrir mótmæli, hálfleikstölur urðu 16-14.  (Dóri skoraði úr vítinu), hann nýtti öll vítin okkar og það er nú gott, Dóri var mjög flottur í þessum leik.

Við skorum fyrsta mark seinni og minkum í eitt mark, 16-15.  Við vorum að fá ferleg mörk á okkur úr hornunum og það er hreinlega áhyggjuefni, en þeir Haukar eru jú með snilldargóða hornamenn.   Halli fiskar víti og tvær, og enn skorar Dóri Jói.

Markmenn beggja liða verja nú vel, Maggi tók marga bolta rosaflott, maður gegn manni og það er gleðilegt, loksins náðum við að skora úr víti og jafna í 19-19, aldeilis gaman. Andri Berg fékk svo brottvísun fyrir að draga einn úr treyjunni  upp að ökslum, þeir fá víti en Maggi VER og þeir ná boltanum, og aftur varði Maggi, glæsilegt að sjá þetta !!

Við náðum svo að komast yfir 19-20 með marki Halla af línunni, eftir glæsilega línusendingu Danna Berg og nú eru 12 mín liðnar af seinni. Við framhjá en Maggi bjargar okkur enn með góðri markvörslu. 

Við lendum aftur manni færri og Haukar eru nú betri en svo að þeir láta tækifærið  úr hendi sleppa og þeir jafna og komast yfir. Við lentum í veseni þarna, langar sóknir og mistakahrina okkar verður okkur dýr, 23-20 en Halli skorar svo eftir flotta sendingu Einars Rafns, og ekki minnkar gleði okkar þegar Halli skorar beint úr aukakasti, flott hjá þeim gamla.

En Birkir Ívar varði þrisvar í sömu sókninni og þegar 7 mín eru eftir eru Haukar komnir 4 mörkum yfir, 26-22. Það gleðilega þó er að þarna hafði hinn frábæri Róbert Aron komið inná og loksins loksins er strákurinn að verða spilafær, við höfum nú beðið í hartnær ár eftir kappanum. Robbi skorar alveg eins og ekkert C og Einar Rafn minkar í 26- 24 og aðeins 5 mín eftir.

En nú fór hundaskíturinn beint í viftuna og allt gekk okkur í mót, við vorum sjálfum okkur verstir þarna, fengum brottvísun og aðra fyrir mótmæli,þeir skora, við fáum ruðning á okkur, enn missum við mann af velli, þeir skora og nú er þetta bara að fara úr okkar höndum, staðan orðin 28-24 og ein og hálf eftir, við bara 4 inná gegn þeim með fullskipað lið.

Vörn þeirra ver, þeir skora tvö mörk í röð og Einar Rafn skorar síðasta mark leiksins af 12 metra færi, 30-25 sem urðu lokatölur leiksins.

Alls ekki neitt klúður hjá okkur, úthaldið er nú fyrir hendi, okkur vantar aðeins að slípa saman liðið, okkur vantar smá lokahnykk að verða það lið sem við best þekkjum, Framstrákar eru nú harðduglegir, sterkir og vantar aðeins rétt herslumun að verða hörkulið eftir nokkra lægð undanfarnar vikur.  Vonandi hefur þessi leikur sýnt okkur að þetta er virkilega að ganga hjá okkur og við getum sannarlega velgt öðrum liðum undir uggum það sem eftir lifir vetrar, og það munum við gera.

Þessi leikur var bara hörkugóður, margt gekk mjög vel, menn í miklu betra formi, spilaæfingin er bara það sem þarf, og það kemur auðvitað, Einar þjálfari hefur ásamt Hilmari gert góða hluti í des og Jan og mér sýndist ég sjá Kaíró  þarna í nokkur skipti og brá fyrir afbrigði af tvöföldum Júgga með klippingu og rakstri..  og allt að gerast.

Strákar, þetta er miklu betra hjá ykkur, haldið áfram að berjast svona og þá mun uppskeran verða okkur að skapi.  Þið hafið nú sýnt að liðið er í mun betra formi og ég segi eins og Dagur Sigurðs;  „ Koma svo „  !!

Tölfræðin:  Dóri með 7 mörk, 5 úr vítum tók öll vítin og nýtti !!  flottur Dóri !
                     Einar Rafn með 6, mörg ansi flott og skemmtileg
                      Halli 5 og brá fyrir nettum Robba snúningi..
                               Danni Berg  3 mörk

                                   Guðjón, Andri Berg, Róbert Aron og Hákon með 1 hver.
                Maggi Erlends varði 18  og stóð í markinu allan tímann.. sem er gott því menn eiga ekki að sitja í markinu..

Næsti leikur er við Há Ká á útivelli, þó ekki á úti- velli, heldur innandyra.
það væri bara fínt að þið kæmuð og létuð í ykkur heyra!
   Hvetjið okkar lið til Sigurðs..   Áfram FRAM !

Engar myndir, enda var ég ekki á leiknum..

Kv,bbb

kíkið á:   www.123.is/frammyndir   þar er Jói Kristins með stóru linsuna sína og það verða komnar flottar myndir í kvöld eða á morgun. Jói klikkar ekki !




« Til baka
  • Sjóva
  • VW
  • BootCamp
  • Sjóvá
  • Skýrr
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • Landsbanki
  • Sjóvá

Leitarv�l