Leikurinn byrjaði ankannalega, því liðin tvö skiptust á ruglinu fram og til baka. Strax eftir 57 sekúndur varð Stella fyrir því óláni að fara á vörnina, detta og meiðast á fótnum, henni var því skipt af velli og kom ekki meira við sögu.
Hinir 28 áhorfendur sáu þess í stað leikmann númer 14 hjá Fram sem kom inná nokkuð fyrr en ætlað var, en Sigurbjörg Jóhannsdóttir er nú albata og þarf ekki að spara sig neitt. KAÞór skoraði fyrsta markið, Arna Erlings skoraði úr víti. Eftir 5 mín skoraði Arna aftur og kom gestum í 0-2.
Hafi menn haldið að þetta væri búið ,er það ekki satt. En mínar stelpur komu ákaflega afslapaðar til leiks, helst til of slappar, en náðu svo úr sér doðanum, vörnin small og þá byrjuðu hraðaupphlaupin, sem eru aðal liðsins. Marthe skoraði okkar fyrsta eftir slíkt, Það sem einkennir liðið okkar er að allir leikmenn geta tekið af skarið hvenær sem er og þegar vörn andstæðinganna tekur einhvern úr umferð byrja hinar að raða inn mörkum.
Hægra hornið okkar og vinstra voru í aðalhlutverkunum í dag, Marthe og Guðrún Þóra skoruðu 13 mörk samtals, og Karen Knúts með sín 7. Hún fór sér samt frekar hægt, þótt sprettirnir hennar séu löngu landsþekktir. Stelpan þarf ótrúlega lítinn tíma til að stinga af og hefur jafnvægi sem köttur og skorar útfyrir fólk eins og ekkert sé.
Fyrsta mark okkar kom sumsé á 7.08 mín og svo jöfnuðum við í 2-2, líka Marthe þar á ferð, mikilli ferð. Unnur Ómars skorar 2-3 og komnar 10 mínútur. Þá náum við boltanum, hröð sókn og Ásta Birna þrumar á markið, boltinn í stöng, í hina stöngina og aftur til baka í stöngina og út... þetta hef ég bara ekki séð í háa herrans tíð, stöngin,stöngin,stöngin, út.
hefði verðið magnað að sjá þennan inni Ásta !
3-3, við jöfnum með marki Hildar eftir góða sendingu Ástu B og þá sé ég semsagt eins og áður sagði, að Sigurbjörg er að hita upp, og manni hitnaði sjálfum um hjartarætur að sjá þennan leikmann í búningi Fram, svo lengi höfum við beðið, og nú er sú bið á enda, stelpan trítlar inná nákvæmlega 13.04, og mundu það Sibba !
Íris Björk byrjaði afskaplega vel og varði hvað eftir annað með sínum glæsibrag, Arna Erlings skorar 3-4 og enn eru þær komnar yfir, 14 mín komnar, og þá loksins var eins og Framstelpurnar bara hristu makkann, litu upp og litu svo ekki aftur eftir það, Pæja byrjaði með að skjótast útúr vörninni, stal bolta og skoraði úr hraðaupphlaupi, 4-4.
5-4, 6-4 , 7-4 þessi þrjú mörk komu öll eftir góða vörn, sem small eins og járnhlið í lás og skapaði okkur ógrynni af hraðaupphlaupum það sem eftir lifði leiks.
Þegar 5 mín voru eftir af fyrri var staðan 11-6. Þarna Hafði Sibba skorað sitt fyrsta mark utan af velli með hörkuskoti í bláhornið, og þarna kannast ég við kauða, það er ekki að sjá að stelpan sé búin að vera frá í hartnær eitt ár, það er eins og hún hafi bara rétt hlaupið frá í einn leik eða tvo, alveg svellköld, og hiklaus.
12-6 og 13-6, Enn er Marthe með ótrúleg slútt úr horninu, hún hittir nú netmöskvana eins og æfður netakall, með sjóhatt og tóbaksslummu í skegginu, alveg snilld.
13-7 með marki KAÞórs og Karen skorar eftir að hafa fintað sig fimlega framhjá varnarmanni og hamrað inn, 14-7 og 15-7 með marki Karenar úr hraðaupphlaupi, þetta urðu hálfleikstölur.
-----------------------------------------
Íris tók enn að verja sem veitekkihvað og Karen sýnir enn hraðaaukningu sem engin önnur stelpa býr yfir í íslenskum handbolta, það kemur henni alltaf í betri færi en hinar geta, og svo hittir hún yfirleitt alltaf það sem hún miðar, enda stendur amorsörin enn í miðju hjarta Óla Bjarka eftir hnitmiðað skot af löngu færi hér um árið. 18-10, 19-10 og 20-10 segir allt sem segja þarf, Framliðið stjórnaði leiknum algjörlega,Það er betra flæði í sókninni og það er sjáanlega meiri hraði, og ekki síst þegar við vinnum boltann, hann rennur milli handa svo hratt og hnitmiðað, hraðaupphlaupin eru nú orðin á annan tug og Sigurbjörg er við stýrið.
Að venju nær Guðrún Þóra að stela miðju, nær sendingu og hleypur ein fram, en lætur verja og Einar glottir en skammar hana samt, hvernig getur maður verið vondur við svona indælis stúlku ha ? ekki ég.
21-12 og 22-12, Helga Vala kemur í markið, Anna María var komin inná í sókn fyrir Pæju og Eva og Arna eru að hita upp.
Nú eru 15 mín eftir, Ásdís Sigurðar skorar sitt fyrsta mark í leiknum fyrir norðanstelpur, hún hefur oftlega verið markahæst svo nú er Snorrabúð stekkur, enda var hennar vel gætt.
Guðrún Þóra veður í færum, skorar með vippu, 23-15. Nú er ógnin hjá okkur í sókninni svo mikil frá öllum, miðjan, skyttan og þá pakka þær á skotfintuna, en við það verður yfirtala, hornið er frítt og Guðrún Þóra fær góða flugbraut inní teig og skorar að villd.
Enn 10 marka munur með hörku skoti Hildar Þorgeirs í stöng og inn, Hafdís er komin inná líka og þær Hafdís og Hildur skipta skyttustöðunni milli sín í seinni hálfleik, 6 mín eftir, Inga Dís skorar 17 mark KAÞórs, og Sigurbjörg þrumar einum í sammarann við mikinn fögnuð áhrfenda sem voru nú orðinir næstum 60 eða þarumbil, Knútur hafði þó hægt um sig með trefil um hálsinn, kvefaður kallinn og einhver lumbra í honum, ekki líkur sjálfum sér, enda fengu dómararnir engar leiðbeiningar af áhorfendabekknum og því ekki furða að nokkrir afar undarlegir dómar litu dagsins ljós, en það var bara gott krydd með þessari steik, Ásta Birna er enn að reyna að fatta af hverju hún var rekin af velli þarna undir lokin, en við því fáum við kanski aldrei svar..
Vörnin er fyrst og fremst að skapa velgengni okkar maður sér léttan Dinar oft og Karen var næstum farin í einn Petterson þegar hún elti sóknarmann KAÞórs í hraðaupphlaupi, en lét það eiga sig. Svona borgar sig að sýna frá landsleikjum, þetta á að sýna sem skyldu í skólum og í kirkjum, undir stólræðunni eða yfir prédikun, þá myndi gott og guðrækið fólk geta slegið tvær flugur með einni, og ungviðið myndi koma í messur sem aldrei fyrr.
Hildur Þorgeirs og Ásta Birna loka þessu með síðustu tvem mörkunum, og þrír tugir eru nú komnir á töfluna, lokastaðan 30-18, góður og sanngjarn sigur í dag, stelpurnar vel að þessu komnar, þrátt fyrir stórundarlega byrjun..
tölfræðin er svona:
Guðrún Þóra 7
Hildur Knúts 7
Marthe 6
Hafdís 3
Sigurbjörg 2
Hildur Þorgeirs 2
Pavla 2
Ásta Birna 1
Íris Björk 16 varin skot
Helga Vala 9 varin
2 víti, utan vallar í 10 mín
tékkið svo á myndunum hjá Jóa, ww.123.is/frammyndir
Kv, bbb