Content

8.2.2010

LEIKURINN: HK-FRAM mfl.karla 9 feb. +MYNDIR !

..........
..Hér eru nokkrar myndir úr leiknum, þetta var all sérstakur leikur og undarlegur, Framstrákar geta kennt um allt of mörgum mistökum að þeir skyldu ekki vinna, en samt var góður gangur hjá þeim á köflum og mátti
sjá mikla og góða breytingu, áræðni var meiri, vörnin var mjög góð langtímum saman.
Guðjón Finnur og Danni Berg voru að sýna góða takta, Dóri og Andri Berg líka, markvarslan var góð á köflum
og margt svona, en markvarsla Sveinbjörns í HK markinu gerði nú sitt og svo má ekki gleyma hinum sérstöku
brottvísunardómum sem sló okkur útaf laginu.  Má segja að þarna hafi farið saman slakur leikur okkar í heildina litið og einstök dómgæsla.
  
staðan var 1-2 eftir 5 mín, þegar hálfleikurinn var hálfnaður skoraði Hákon gegnum vörn HK og kom okkur í 3-5.
eftir 20 mín var staðan 8-6 fyrir heimamenn, þarna misstum við boltann hundrað sinnum og sýndum álíka góðan leik í að kasta og grípa og í 4fl C og ég er ekki að tala niður til 4flokks.
  2 mín eftir af fyrri, 11-9 eftir að Einar Eiðs hafði skorað úr víti, en víti var það sem við söknuðum talsvert þarna, menn vörðust ítrekað inní teig, en sluppu með það. 
1 mín eftir við í vörn og þá sé ég Atla Ævar gefa Andra Berg vænt olnbogaskot og Andri féll í kút, en dómarinn missti af þessu og gat ekki gert neitt, en þetta var nú druslulegt af númer 13.

Þeir skora 12-9, við förum hratt, enn verjast þeir inní teig, dómarinn missir enn taktinn og dæmir aukakast..það sleppur þó til því Danni neglir inn 12-10 sem urðu hálfleikstölur.

Við náðum að jafna í 13-13 og virtumst geta þetta alveg, En þá kom ruglið aftur hjá okkur og þeir komast í 20-16 og við vorum útaf með brottvísanir stóran hluta þessa tíma.  Bjarki Már Gunnarsson fékk brottvísun sem var 
fyrir ansi lítið og fór hann brosandi af velli með spurnarsvip.
   Sveinbjörn er nú búinn að verja ein 16 skot, þarmeð vippu og 12 mín eftir, sem urðu í meira lagi spennandi.

21-16 og þetta virtist búið hjá okkur.  Siggi kominn í mark okkar, varði næsta skot, Einar Rafn skorar úr hraðaupphlaupi, 21-17.    22-17 eftir að vörn okkar opnast eins og fíll hafi farið gegnum postulínsbúð á 66nd street,  En Halli skorar með glæsilegri vippu, 22-17, þeir spila mikið 6-0 vörn svo línan hjá okkur fær engin færi sem heitir.    Matti Daða kemur í vörnina, við spilum nú 5-1 með grimmum bakvörðum sem ganga langt út.
   Nú for um okkur svo um munaði þegar Einar Rafn fer í gegn í horninu, boltinn sleginn úr hendi hans, ekkert dæmt, sem okkur fannst skrýtið, þeir í hraðaupphlaup og skora og Siggi fær brotvísun fyrir að hafa brotið á leikmanni HK í markvörslutilraun sinni... ægilegt að sjá þetta, þetta var algjört slys og engan vegin hægt að meta þetta öðruvísi, HK ingurinn meiddist ekkert , gat haldið áfram að spila, en Siggi var sáróánægður og þrumaði boltanum í gólfið og dómarinn gaf honum aðrar tvær mínútur í refsingu.  Staðan  23-18.  Til að kóróna þetta fékk Andri Berg ekkert útúr broti hinum megin og HK skorar 24-18.

9 mín eftir. Sverrir Hermanns fær brottvísun,  Andri Berg skorar 24-19.    Valdi Þórs skaut framhjá og Dóri okkar skorar mikilvægt mark, 24-20.
25-20 með marki góðvinar míns Halldórs Stefáns hjá HK, var hann að tryggja þetta fyrir sína menn ?
   Andri Berg með slemmu, 25-21,  þeir lína, Einar Eiðs skorar fáránleg mark úr engu færi í horninu, 25-22
5 mín eftir,  Þeir missa boltann og Dóri skorar 25-23 og allt að verða vitlaust.   Þeir láta verja hjá sér og okkur liggur á, Einar Rafn skorar aftur, 25-24 og 3 mín eftir...

En HK skorar eftir langa sókn, hvílík vonbrigði, þetta er líklega ekki mögulegt lengur,  Danni neitar að gefast upp, skorar , 26-25 og 2 mín eftir.    Jói Larsen og Atli Ævar fá nú báðir brottvísun og því ljóst að bæði liðin spila manni færri út leikinn.   HK skorar 27-25 og endamarki slakrar dómgæslu er náð þegar HK leikmaður straujar Danna Berg niður eftir hraða miðju okkar og við fáum aukakast... váá þetta var vel sloppið hjá HK og þetta gat skipt máli að vera síðustu eina og hálfa mínútuna með 5 inná gegn 4 þeirra. En svo varð ekki og þótt við fengjum víti sem Einar Rafn skoraði úr er tíminn naumur,  Sverrir nær flottu undirhandarskoti gegnum vörnina og gulltryggir þetta fyrir HK, 28-26, Andri Berg svarar með marki, 28-27 en nú taka HK tíma og ná að brenna upp síðustu sekúndunum, þeir sigra 28-27 og mega þakka fyrir þennan sigur.

hef ekki tölfræðina, afsakið það.
kv, bbb


 hér sést að vörn okkar var feikigóð á löngum köflum.

            Hákon með þreklegt gegnumbrot


              stuðningsmenn FRAM númer 1 og 2


                      Danni Berg var öflugur


              Kanslarinn kemur á vörnina.  þessi á inni !



            Halli fékk ekki mörg færi en nýtti þau vel, flottur !

      Stebbi Stebb er meiddur, þessi var á fljúgandi ferð um teiginn, Guðjón Finnur.

     hmmm.  þetta eru tvær mín samkv reglum...


             Siggi vearði strax þegar hann kom inná.


                               Einar góður, og klikkar ekki á vítunum.

 Minnir að Danni Berg eða Andri Berg hafi átt þetta skot.





« Til baka
  • Sjóva
  • VW
  • BootCamp
  • Sjóvá
  • Skýrr
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • Landsbanki
  • Sjóvá

Leitarv�l