Content

10.2.2010

Tilkynning frá stjórn FRAM FFR vegna KSÍ & leyfisgagna 2009

Af umfjöllun um að KSÍ  hafi úrskurðað að leyfisgögn Fram vegna ársins 2009 hafi verið vísvitandi röng, vill stjórn Fram FFR koma eftirfarandi á framfæri:

Fram hefur alltaf lagt mikinn metnað í að vanda vel gerð leyfisgagna til KSÍ  og eins var varðandi leyfisgögn vegna ársins 2009.  Hins vegar kom upp mál sl. haust sem framkvæmdastjóri KSÍ sá ástæðu til að taka til umfjöllunar varðandi umrædd leyfisgögn og fékk Fram athugasemdir þar um.  Fram svaraði því með ítarlegri greinargerð og gögnum, þar sem var gerð grein fyrir fyrir málinu af hálfu Fram.

Stjórn Fram FFR er mjög ósátt við vinnubrögð KSÍ í málinu, niðurstöðu þess og að KSÍ hafi ekki séð ástæðu til að  taka neitt tillit til málefnalegra andmæla félagsins.   

Umfjöllun sem verið  hefur um málið í fjölmiðlum er til þess fallin að rýra trúverðugleika og traust til félagsins, af henni má skilja að Fram hafi vísvitandi haft rangt við varðandi leyfisreglur KSÍ.  Stjórn Fram FFR vísar því á bug, en leggur áherslu á að hér eftir sem hingað til leggur félagið metnað í að vanda vel frágang leyfisgagna til KSÍ.

Stjórn Fram FFR


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l