Content

11.2.2010

Leikurinn: FH - FRAM í mfl. kvenna, undanúrslit Eimskips Bikarsins !

Framstelpurnar mættu í Kapplakrikann í kvöld miðvikudagskvöld, vel studdar af áhorfendum FRAM, sem mjölfenntu á leikinn, og munaði mest um að nú er Knútur heill heilsu og röddin komin, eftir kvefpest mikla. Ekki var að spyrja að því að stelpurnar komu ákveðnar og smart til leiks. Sigurbjörg er líka að finna sig betur og betur, hvernig sem það er nú hægt, hún er svo flott, en Stella skorar fyrsta markið, hún hefur næmt auga fyrir því að hitta markið, hefur sett boltann eins og sagt er á handboltamáli, hún bara hittir vel og nær að plata markmenn til að fara í annað hornið, en nei, boltinn liggur í hinu horninu.. svekk, og það var þeim mun erfiðara fyrir þær sakir að í markinu stóð nú hin undurfagra og flotta Kristina, okkar indæla fyrrum FRAM markvörður. Hún eignaðist stúlkubarn í sumar sem leið og litla prinsessan Ditje leyfði nú mömmu sinna að skreppa frá og taka leik á móti sínum gömlu stelpum.  Kristina hefur engu gleymt og varði feikivel á köflum og hélt FH liðinu inni í leiknum, en það stóð samt ekki lengi, Karen, Stella, Sigurbjörg og Guðrún Þóra sóttu ákaft á markið, og eitthvað varð undan að láta.  3-3 og 4-4, og 5-5 eftir 9 mín, hvurslags er þetta, FH stelpur eru í mestu vandræðum í sókninni, flestar þeirra enda á því að armur laganna, altsvo  dómaranna var kominn á loft og þær urðu að taka skotið. Það gekk þó bara vel, Ragnheiður Rósa dúndraði bara af 10 metrunum og inn og hélt FH inni í leiknum.

7-7, Íris varði líka vel, og það er sérlega skemmtilegt að sjá EHF taktana hjá stelpunum, þær slá á hvern bolta og ná að vinna helling í vörninni, stela og komast inn í sendingar og enn sé ég nettan Petterson ef FH fær hraðaupphlaup. Karen Knúts hefur lært vel heima og nær að slá bolta frá FH stelpum hvað eftir annað. Guðrún Þóra er söm við sig og nappar nokkrum boltum.

Sigurbjörg labbar inná, Stella skorar 8-9 og við komnar yfir og nú finnst mér þetta vera að smella, við getum klárlega slitið okkur frá FH liðinu, mér finnst vera stigsmunur á liðunum í kvöld.
  Sigurbjörg fær víti eftir þreklegt gegnumbrot, Stella skorar að hætti Ástu Birnu, stöngin,stöngin inn..9-10.   Næst skorar Guðrún Þóra og það var sérstaklega gaman að sjá hana sneiða boltann inn úr þröngu færi, váá hvað hún er flink að finna smugurnar, algjör engill og næstum með vængi, svo vel flýgur hún um loftin blá inní teignum. 9-11.

Við náum enn í vörninni og Marthe fer hratt upp völlin, fær eina FH stelpu á sig og tekur því skotið af 13 metrunum og endar svo sjálf útí vegg, skorar flott mark og fiskar að auki eina útaf með tvær.
9-12.     10-12 en Sigurbjörg kann fintuna sína og skorar eftir eina slíka, 10-13 og nú er að drífa sig í burtu frá Hafnfirsku stelpunum, sem slógu okkur eftirminnilega út úr bikar í fyrra og verður það seint fyrirgefið..   10-14 með marki Ástu Birnu sem hreinlega fleygir sér gegnum vörnina í hraðaupphlaupi og nú er ég viss um að þetta er að koma,  FH liðið er ekki nógu sterkt í dag og FRAM stelpur eru feikna ákveðnar í að fara í Höllina 27 feb, svo mikið er víst.

Enn er vörnin að virka, Sibba sendir svo á  Pæju sem skorar, Pæja er ákaflega dugleg, vandar sig mjög og skorar ætíð mikilvæg mörk, er líka indæl og blíð og Róbert er heppinn maður, get vottað það.
  Anna María leisti svo Pæju af smástund, skorar strax, en fær víti, var víst lent í teignum, Stella þrumar svo bara í timbrið og yfir svo þetta er allt í lagi, Vörnin reddar þessu, Karen sleppur svo í gegn og skorar nottla mark og þá er 11-16 fyrir okkur og hálfleikur skellur á.   Dómararnir frá bítlabænum hafa þetta alveg, þeir hafa ákaflega mikið stabíletet og hafa sýnt jafna og góða gæslu, eru líka geðþekkir og glaðlegir og fá virðingu okkar ótakmarkaða.

V b s þýðir á stuttu hraðskriftarmáli á blaðinu mínu: við byrjum seinni, og það gerði Karen svo um munaði, eitthvert aukagaldraskref kemur henni lengst inní teig og hún skorar 11-17 og má varlega áætla að þarna hafi lokinu verið skellt aftur. En nei, ekki voru FH stelpur alveg tilbúnar í uppgjöf, náðu að sauma að okkur og minnka úr 6 mörkum niður í þrjú í seinni, en þá koma sprengjurnar hver á eftir annari frá FRAM stelpum og þær spretta úr sporinu og leiknum lauk með sigri FRAM, 29-20  og nú er ljóst að FRAM á lið í Laugardalshöll á laugardaginn 27 febrúar og þá verður sko glaumur og gleði, glens og gaman og man ekki hvað byrjar meira á g..

 

Ekki var kvöldið svo alveg búið, í Mýrinni í Garðabæ áttust við FRAM og Stjarnan í 3fl, karla og sá leikur var líka í undanúrslitum Eimskips bikar, þar var nú öllu meiri spenna og eftir venjulegan leiktíma var jafnt og eftir fyrri framlengingu var Stjarnan yfir með 3 mörkum, FRAM strákar náðu að minnka í 1 mark undir lokin en það dugði ekki, Stjarna vann  37-36 og það var gaman að sjá að margir höfðu komið úr Kapplakrikanum af mfl. Kvenna leiknum til að styðja 3fl. Strákana í Mýrinni, og við þökkum fyrir það, ekki gekk það samt og strákarnir voru afar svekktir, enda spennustigið hátt í leiknum.

FRAM 4fl karla B-lið tapaði fyrir UMFA A-liði í kvöld, í undanúrslitum Bikarsins,svo þá er 4fl, kvenna  eftir að spila í undanúrslitum Bikars, og yrði þá eina yngri flokka lið FRAM  sem kæmist í Höllina 28 feb.
  Fylgjumst með því á föstudagskvöldið, hef ekki tímann enn, en kíkið á HSÍ síðuna.
     Þá er þessu bikarkvöldi lokið, FRAM stelpur öruggar í úrslitin, en bara eitt lið eftir sem á möguleika á að komast í Höllina bikarhelgina.
   takk fyrir, skoðið myndasíðu Jóa Kristins, hann var að smella myndum. 
www.123.is/frammyndir  

bbb.

P.S.  í pistli mínum um leim FRAM og HK í mfl. Karla voru mörg orð látin falla um dómara leiksins
og eftir umhugsun og áminningu breytti ég orðalaginu talsvert. Það er engin þörf á að vera með
orðbragð sem særir og hafi svo orðið ætla ég að biðjast velvirðingar á því.  Þetta er sagt í upplifun hversdagsmannsins og notuð rödd götunnar, sem taka ber hæfilega alvarlega.  Dómarar hafa þurft að hlusta á áhorfendur sem ekkert vit hafa á reglum og þeir fá skítkastið alveg frítt frá öllum, svo ég ætti ekki að vera að bæta á það. Í hita leiksins gerist þetta, því miður.

 



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l