Content

11.2.2010

Reykjavíkurmótið í Knattspyrnu mfl.: Fram leikur á sunnudag kl. 18:00


Fréttaritari vill byrja á því að óska Framkonum til hamingju með góðan sigur á FH í bikarkeppninni í handbolta, vel af sér vikið!!

Í fótboltanum er ljóst að Fram mætir liðinu sem verður í öðru sæti í A-riðli á sunnudag kl. 18:00.  Þetta varð ljóst á mánudag þegar kastað var upp á hvort Fram eða Fylkir hlyti efsta sæti B-riðils.  Bæði liðin unnu Leikni og Fjölni 1-0 og gerðu svo 3-3 jafntefli í sínum innbyrðis leik.

Andstæðingar Fram gætu orðið KR, Þróttur eða Víkingur, en það ræðst í kvöld (fimmtudag) þegar Víkingur og Þróttur mætast. KR hefur lokið keppni í A-riðli og Víkingar þurfa að sigra Þrótt til að Fram og KR mætist.  Jafntefli eða tap Víkings með 1-2 mörkum þýðir að Víkingar verða andstæðingurinn á sunnudagskvöld.  Takist Þrótturum að sigra með 3 mörkum komast þeir í leikinn gegn Fram.

Hörkuleikur á sunnudag, sama hvernig fer í kvöld.  Mætum öll, Áfram FRAM!!!


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l