Content

12.2.2010

4fl. kvenna komst í úrslit í bikarnum !

Í kvöld var leikur í 4fl. kvenna í undanúrslitum bikars.
Mótherjar voru Stjörnustelpur.

  Í hálfleik var staðan 9-5 fyrir okkur, vörnin var mjög góð og Eydís varði vel.
Í seinni hálfleik stungu Framstelpurnar af og var sigurinn aldrei í hættu, leikurinn
endaði 20-10 fyrir FRAM stelpur ! 

 Mest munaði um að Eydís var frábær í markinu, varði hvað eftir annað meistaralega úr dauðafærum, Karólína var mjög góð
og skoraði mest  hjá okkur, eða heil 6 mörk, Íris var með 4, Elfa Þóra,
Jóhanna og Hafdís með 3 hvor og Guðrún Jenný ( úr 5.fl) skoraði 1 mark.
  Stelpurnar okkar voru frábærar allar og verða til alls líklegar um aðra helgi í HÖLLINNI  !!!
Þjálfarar stelpnanna eru hinir sívinsælu Jónssynir, þó ekki bræður, Sigurgeir Sissi Jónsson og Einar hreppstjóri Jónsson.

Mótherjar í úrslitaleiknum verða annað hvort  FH eða ÍR, sá leikur á eftir að fara fram.

Úrslitaleikir yngri flokka verða leiknir 28 febrúar, kynnið ykkur stundaskránna á HSÍ.is þegar
nær dregur.

Til hamingju stelpur, Bikarinn í Mýrina !


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l