Content

13.2.2010

EHF keppnin í FRAM húsi: R.K.Tresnjevka vs FRAM kvenna.

Fyrri leikurinn í EHF áskorendakeppninni sem FRAM telpur taka þátt í var í dag og mótherjarnir komnir alla leið frá Króatíu. Gestirnir höfðu kíkt í bæinn í morgun og í mollið ,og virtust afar afslappaðar fyrir leikinn.  Það kom svo á daginn að sú afslöppun var þeim ekki í hag, því Framstelpur voru grimmar og héldu góðum hraða og sem fyrr var vörnin að virka og þá virkar allt annað, Íris Björk varði vel og við fengum hraðaupphlaup og þetta gekk bara vel, hefðum þess vegna getað verið 8-9 mörkum yfir í hálfleik, en vorum þó 5 mörkum yfir, 12-17. Ég skrifa þetta svona því þessi leikur var heimaleikur Tresnjevka og þær því á undan í töluröðinni.

Í seinni hálfleik minkaði munurinn í 2 mörk, þar munaði aðallega um nokkur mistök okkar og smá klúður með færin, en svo náðu stelpurnar að þétta vörnina svo nærri lá að allar sóknir Tresnjevku enduðu með hendi á lofti og þær þurftu að slútta af löngu færi og úr lélegum færum, akkúrat það sem við vildum.
  Því var það að við drifum okkur frá þeim aftur og hélst örugg forysta alla leið í endamark, og í síðustu sókn Tresnjevku náði Karen að komast inní sendingu, geystist fram og skoraði 2 sekúndum fyrir leikslok og færði okkur 5 marka sigur, 26-31. Þetta síðasta mark gæti skipt miklu máli, því víst er að þær Króatísku ætla ekki að maula sælgæti og snakk á hótelherbergjum sínum í kvöld, þær munu fara yfir leikinn og þjálfarar munu gera allt til að stoppa okkur á morgun.

Við þyrftum líka að ná tangarhaldi á tíunni hjá þeim, hún skoraði 12 mörk, 6 af velli og 6 úr vítum, en Íris varði eitt víti frá henni.    Það munu því verða strangir videófundir í kvöld og á morgun hjá báðum liðum. 

Allra gleðilegast var að sjá Hildi Þorgeirs koma svellköld og skora sex mörk, það munar sem fyrr gríðarlega að hafa ógnun frá skyttunum beggja vegna, línustelpurnar okkar voru í strangri gæslu en Pæja náði þó að skora 4 mörk og fiska bæði víti og brottvísanir.
Stella skoraði 5 mörk, afar áræðin og dugleg sem fyrr, Karen með 9 mörk og mikla vinnslu, hraða og sprengikraft.  Marthe skoraði 4, lagleg, og sum hver úr afar þröngum færum,  Hafdís Inga setti 2 og Guðrún Þóra eitt,  fengum 5 víti og skoruðum 4 mörk. 

Þetta var góður sigur og enn betra var að sjá fjölmarga áhorfendur mæta, ég sá þjálfara annara liða í deildinni, leikmenn og ýmsa fyrirmenn, eftirlitsdómara, æðstu menn HSÍ og fleiri, og það var einkar ánægjulegt, við þökkum ykkur kærlega fyrir stuðninginn , það er okkur mikils virði.

Nú er í raun bara hálfleikur, seinni leikurinn á morgun og mann langar svooo að sjá annan sigur þá og sæti í 8 liða úrslitum, hver veit hvaða stórliði við gætum dregist gegn..  en nú er ég farinn framúr sjálfum mér og bakka til baka, á morgun er stóri dagurinn, verður hann ekki stóri dagurinn OKKAR ??

Áfram FRAM stelpur  !!!    koma svo !   ( Dagur Sigurðsson)

Kv, bbb

www.123.is/frammyndir  



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l