Content

14.2.2010

Leikur 2: EHF keppnin: FRAM - R.K.Tresnjevka Króatíu .

Seinni leikur Framstúlkna í daga sunnudag var aldeilis hreint frábær, byrjunin var eins og best var á kosið og stelpurnar okkar hreinlega völtuðu yfir þær Króatísku á öllum sviðum handboltans.

Eftir 14 mín af fyrri hálfleik var staðan 10 -4 fyrir okkur.

Eftir 25 mín var 18-9

  Í hálfleik var staðan 21-11 og þetta var eiginlega búið, því Króatísku stelpurnar voru miklu hægari
og hnoðuðust bara á vörnina, nokkuð sem við tókum með þökkum, engin skot að ráði voru erfið
og Íris Björk var sannarlega tilbúin sem fyrr, varði 10 bolta í fyrri en  5 boltar voru varðir hjá Tresnjevkum.
Í seinni hálfleik hélt flugeldasýningin áfram., Marthe Sördal fór á sínum kostum og skoraði níu mörk úr 10 tilraunum og fékk víti úr þessu eina sem klikkaði, alger draumastúlka hún Marta.
Helga Vala kom í markið  í seinni hálfleik og varði  10 bolta,  vörnin tók megnið af öðrum skotum og þær Króatísku áttu enga aðkomuleið.  Guðrún Þóra var eitthvað stúrin í gær og var ákveðin í að bæta sig og það gerði hún sannarlega, skoraði 6 mörk, stal og studdi vörnina á hvern veg sem hægt var. 

 Karen og Stella héldu góðri breidd og náðu að splundra vörn þeirra hvað eftir annað, Sibba kom og skoraði  6 mörk, hélt góðu tempói og stýrði sínu liði sem fyrr.  Það var því næsta ótrúlegt að sjá að þær Króatísku voru engan vegin klárar í þennan leik, og landsliðsmaðurinn þeirra, skyttan númer 15 fór af velli eftir 9 mínútur, og hafði engan vegin fundið sig, hún skoraði ekki eitt einasta mark !
Línustelpurnar Pavla og Anna María voru magnþrúngnar og skorðuðu 5 mörk samanlagt, Pæja 3 og Anna 2.   Anna Gulla skoraði eitt, Hildur Þorgeirs 3 og Hafdís 1.

Renata no 18 skoraði 6 mörk, var markahæst, Mara Vidivic sem skoraði 12 mörk í gær skoraði eitt mark !!   í dag, þetta var ótrúlega auðvelt  og jafnvel Einsi treinsi var nett hissa á hve vel sínar stelpur spiluðu í dag, hann var stilltur sem steinn í dag og gat gefið flestum tækifæri á að spreyta sig í leiknum. 

Við erum því komnar í 8 liða úrslit áskorendakeppni EHF og það er það besta sem FRAM stelpur hafa gert frá upphafi !  þetta er gríðarlega vel gert og með hjálp allra hefur þetta verið gerlegt, ekki má gleyma öllum sem hafa nánast lagt nótt við dag að gera þessa helgi svona flotta, öll umgjörð og aðstoð foreldra, vildarvina og kostenda eru okkur mikils metin, og áhorfendur sem fjölmenntu í dag fögnuðu með stelpunum, þær stóðu við sitt og við hin líka, ég verð að segja að þegar foreldrar stelpnanna sem hafa unnið þrekvirki borguðu sig inn á leikina þessa helgi lá manni við tárum, þarna sér maður að stuðningurinn nær alla leið og það mun seint fullþakkað.

Hvernig við söfnum peningum til að fara í 8 liða úrslitin er svo önnur saga, en í dag fögnum við merkum áfanga í handboltasögu FRAM, og verður gaman að minnast þess sem aflóga illa lyktandi gamalmenni á Hrafnistu að hafa verið hluti af þessum hóp, tel það forréttindi .

Til hamingju stelpur ! Einar þjálfari og FRAM , megi handboltinn lifa og dafna með þessu afreki !
kv, bbb

 

Munið:  www.123.is/frammyndir     það er Jói Kristins.



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l