Fram hefur leik í
sínum riðli í Deildarbikarnum, A-Deild Karla um helgina. Andstæðingarnir í fyrsta leik eru Selfyssingar, sunnudaginn 21. febrúar kl. 13:00 í Egilshöll. Um að gera að kaupa konudagsblómin fyrir hádegi og drífa sig svo á leik!
Þessi lið hafa ekki mæst oft en það á eftir að breytast í ár því Selfyssingar leika nú Efstu Deild í fyrsta sinn í sögu félagsins. Liðin mættust í Deildabikarnum í fyrra og gerðu 1-1 jafntefli. Þá mættust liðin í Bikarnum árið 2001 þegar Fram vann 6-0, en í þá daga lék Selfoss í 2. Deild.