Content

18.2.2010

Leikurinn: FRAM - Valur í mfl. karla í kvöld.

Nú var komið að því að mæta okkar erkifjéndum frá Hlíðarendanum, strákunum hans Friðriks, og hvurnig skyldi þetta fara.. Framstrákar hafa ekki riðið feitu hrossi undanfarið en nú er annar bragur á liðinu, allir hafa verið að vinna í sínum málum og karakterinn er orðinn  góður í liðinu.
Mér þykir við hæfi að hrósa þjálfaranum Einari Jónssyni fyrir að leiða sína stráka gegnum grýtta jörð og inná mjúkan dúkinn, í fylgd íþróttaþjálfarans Hilmars Þórs Arnarsonar , sem hefur frá því í desember tekið strákana í strangt prógramm, ekki ólíkt Bútkammp og þeir hafa skilið eftir hundrað lítra af svita á gólfinu þessar vikur, og nú er árangurin að sýna sig,  ég fék þessa tilfinningu strax í leiknum og mér liggur við að segja að þetta hafi verið mikilvægustu stig vetrarins, þótt það hljómi kanski skringilega, en strákarnir eru vissulega að fikra sig upp skalann, þeir sjá afrakstur erfiðis síns í þessu stigi.

Fyrstu 9 mínúturnar  voru jafnar, leikurinn var reyndar allur frekar jafn, en staðan var 4-4- eftir þessar 9 mín og mikil teikn á lofti , strákarnir voru alveg dásamlega flottir, hraðinn góður, spilið flott og ég sá nokkur leikkerfi sem eru ný eða nýleg.. Einar láta mann vita !!    en þau voru ótrúlega flott og það hlýtur að vera skrýtið að skyttan Magnús Stefánsson, sem er loks kominn á báða fætur jafnlanga, hann skoraði bæði mörkin sín af Línunni !!    Það er alveg frábært.

Eftir 20 mín var 7-9 og Valsmenn eithvað að skríða framúr, en Maggi Erlends, sonur straumumferðarstjóra Kópavogs, var ósammála og varði, ekki það fyrsta, og Guðjón Finnur skoraði, 8-9, og það er sannarlega gaman að sjá þessa gljáðu kálfa aftur á fjölum hússins, þýskarar kunna ekkert að meta svona kálfa og þeir geta bara étið súrkál og snitzel áfram, án Gauja..

8 mín eftir af fyrri, Maggi ver, glæsilega, skyldi vera hægt að verja illa eða ógeðslega?? Maður smyr sig.. spyr sig.. en og þá semsagt skoraði Maggi Stef af línu, sannarlega snar og snöggur strákur hann Maggi, Halli varð alveg dökkblár í framan af öfund.. þetta var svo elegant hjá Magga.
9-9 og viti menn, Maggi ver og Hákon skoraði og staðan 10-9.   Og Maggi ver  enn og Dóri, Halldór Jóhann Sigfússon skoraði af veglegu færi, af 10 metrunum, 11-9. Og kurr fór um Valsmenn á bekknum, enda komum við þeim í galopna skjöldu þarna, Jón Björgvin kemur nú inná, hann spilar nú með Val, og það segi ég að aldrei venst maður því að flestir okkar leikmenn skuli enda hjá Val, það er bara ekki það sem manni finnst þurfa að vera rétta leiðin en þessu verður maður að kyngja.

11-11, Valsmenn setja tvö á okkur, 3 eftir og Orri fær brottvísun, setti fótinn í boltann, Valsmenn skora 11-12 og Einar Rafn skorar úr horninu, strákurinn var alveg sérstaklega vel stemmdur í leiknum og á sannarlega skilið hrós umfram aðra, Einar er ungur og metnaðargjarn, ákafur leikmaður og leggur sig 100% fram, það er vart hægt að biðja um meira ha ?

Valsmenn fá svo víti undir lokin og skora 12-13 og hafa forystu í leikhléi.  Það er nú samt ekki áhyggjuefni, þetta er allt annað hjá strákunum okkar og þeir geta þetta alveg..

Valsmenn koma ákaflega grimmir til leiks í seinni, vörnin 5-1 eða næstum því 3-3 og við verðum að sýna sérstaklega gætni að halda sókninni gangandi,  Halli skorar flott mark yfir vörnina, og sýnir enn yfirburði sína, þessi brúni drengur er búinn að skila miklu fyrir félagið, hann þjálfar og hjálpar til hvar sem hann getur og er alltaf glaður , manni líður alltaf vel í návist hans. 
14-14 enn er jafnt og spennan að magnast, 15-15,  og 16-16, við þó ekki sáttir við þegar Danni Berg skaut að marki, en virtist brotið á honum,  Dóri kemst í þreklegt gegnumbrot og fiskar víti og tvær, og Einar Rafn fer á vítapunktinn, skorar af öryggi, og þá kemur aftur línumark og það frá Magga Stef, lengsta manni liðsins, þeta er skyrið að norðan, engin spurning.

17-17 og 18-18, þetta er að fara í kransæðarnar, svimi og sviti einkenna nú störf mín, en gegnum þokumóðu og þrengsli silast leikurinn áfram, enn er Halli að draga vagninn og fiskar þreklegt víti og Einar Rafn skorar af list 19-18 og Maggi ver og Hákon klobbar inn einu og staðan 20-18.
   Andri fær brottvísun, en Dóri dregur vagninn, fiskar ruðning og í sókninni fær Dóri svo víti og góðvinur okkar Gunni Harðar fær brottvísun og Einar Rafn tekur hárgreiðsluna á Bubba, og gleðjast nú gumar frekar, staðan 21-18 og þeir taka leikhlé, enda ekki ánægðir með stöðuna.
Maggi ver svo vippu og við hratt upp og sendingarnar hraðar og skilvirkar, Dóri kemur á hundrað og fær blöðruna, skorar af öryggi, og staðan er staggering 22-18, fjögurra marka forysta !
   15 mín eftir, hrollvekjandi korter,  Dóri tekur enn af skarið þegar hendi er á lofti og skorar gegnum vörnina 23-20, Orri skorar fyrir Val, 23-21, Danni og Maggi Stef spila sig gegnum vörn og fá víti, Einar slammar slána og inn, 24-21.

12 eftir, við fáum hraðaupphlaup og Einar Rafn neglir inn marki, 25-21.  Næstu tvö mörk eru Völsk, 25- 23 og það fer nú að fara um mann, en Dóri sækir víti og Einar Rafn er alveg ótrúlegur, skorar 26 -23,   7 mín eftir, þeir skora 26-24,   Maggi Erlends ver hvað eftir annað, við vorum aðeins að missa taktinn, en staðan helst óbreytt, 4 mín eftir  og Dóri fær brottvísun, ahh, þetta var vondur tími, hann var ósáttur en ekkert hægt að gera, enn klikkar hjá okkur, og Maggi ver , en samt enn eitt klikk og þeir skora 26-25 og 2 mín eftir.  

Við klikkum á sendingu, þeir skora og jafna 26-26 æ æ, þetta var fúlt, 1 mín eftir, spilum til 30 sek eftir og Einar tekur leikhlé, loks skotið okkar yfir, og langar 10 sek eftir, þeir fara hratt og komast í sæmilegt færi en skotið hátt yfir og þetta er búið, tíminn rennur út, jafntefli staðreynd,  26-26.

Framstrákar pínu svekktir með jafnteflið, en Valsmenn sáttir, svona er þetta, en hrósið fá FRAM strákarnir allir sem einn, Hákon og Maggi, skyrbræðurnir að norðan voru frábærir, Danni Berg, Halli, Gaui og váá Maggi Erlends, allir fá plúsinn í kvöld, þetta var reglulega gaman að sjá strákar !

Segi bara til hamingju strákar, FRAM strákar !   koma svo !!!

Dómararnir voru Hafsteinn Ingibergs og Gísli Hlynur og voru frábærir, allir voru sáttir, gaman að því. 

bbb.



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l