Strákarnir í 4 flokki karla ákváðu í kvöld að feta í fótspor 4fl. Kvenna og fara í Úrslitaleik Bikars með því að vinna Gróttustráka með einu marki í ótrúlega æsispennandi leik þarna vesturfrá.
Þessi leikur var alveg einstaklega spennandi og var jafnt á flestum tölum í leiknum, aldrei varð meira en 2ja marka munur og undir lokin höfðu Framstrákar forystu og héldu út, og voru þó manni færri tvisvar á lokamínútunum.
Vel studdir af fjölmörgum Frömurum sóttist þetta með seiglunni og var spennustigið hátt.
Það er sannarlega ástæða til að þakka þennan mikla stuðning sem kom frá stúkunni, ég sá ömmur og eina langömmu allavega koma og tryggja sigurinn, þetta var frábært.
Haraldur Þorvarðar og aðstoðarmaður hans Bjarki Bóasson náðu að stýra þessu fleyi til undralandsins í Laugardalshöll um aðra helgi. Nú eigum við náttla meistaraflokk kvenna í úrslitum á laugardag 27 feb og svo bæði 4fl liðin, karla og kvenna á sunnudag 28 feb.
Engan má taka út sérstaklega í liðinu sem betri en aðrir, svo góðan leik áttu þeir allir sem einn og vil ég ekki nefna nein nöfn, snilldarleikur strákar, til hamingju, þetta er þó ekki komið, næst er að hampa bikarnum í stúkunni í Laugardalshöll, það er skipun !!!

það er óhætt að segja að mikið hafi gengið á...

menn henda sér bara í þetta !

þeta var góður skellur, en mark !

þessar eru öruggar í úrslitin !

þetta er bara fyrir alvöru töffara !!!

VARIÐ !!

KOMIÐ !!!

allir frekar kátir !!!

skýrslan.

m. kveðju, bbb