Content

21.2.2010

Fram vann Selfoss - Tómas og Alexander með sín fyrstu mörk fyrir Fram


Fram lagði Selfoss 3-1 í Deildabikarnum í dag, í fyrsta leik beggja í Riðli 2.  fotbolti.net greinir frá.

Selfoss komst snemma yfir en Tómas Leifsson og Halldór Hermann svöruðu og Fram var 2-1 yfir í leikhléi.

Alexander Veigar tryggði Fram svo sigurinn á lokamínutunum, en hann kom inn á sem varamaður fyrir Tómas þegar 25 mín voru eftir.

Þetta voru fyrstu mörk Tómasar og Alexanders fyrir Fram.  Tómas kom frá Fjölni í vetur en Alexander Veigar var hjá Reyni Sandgerði í láni seinni part síðasta sumars, eftir að hafa komið til Fram veturinn 2008-2009.

Næsti leikur Fram í Riðli 2 er á laugardaginn kemur gegn Leikni.

Staðan í riðlinum


Umfjöllun fotbolta.net


Lið Fram í dag:
Hannes Þór , Daði (Jón Orri 85. mín),  Kristján, Jón Guðni , Sam Tillen

Halldór Hermann , Jón Gunnar , Almarr , Tómas (Alexander Veigar 64. mín)

Hjálmar (Orri Gunnarsson 85. mín) Ívar (Hlynur Atli Magnússon 45. mín).



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l