Content

22.2.2010

LEIKURINN: HK-FRAM í mfl. kvenna í Digranesi í kvöld, 22 feb. + MYNDIR

HK stelpur voru ekki mikil fyrirstaða í kvöld fyrir Framstelpur, leikurinn fór rólega af stað og Íris varði fyrsta skot leiksins, en HK stelpur skoruðu svo fyrsta mark leiksins og leiddu næstu mínúturnar eða þar til Hafdís Inga skoraði úr hraðaupphlaupi, jafnaði leikinn og Marthe skoraði annað mark okkar, og 7 mín liðnar.  Það var eins og bæði lið vissu í hvað stefndi og voru ekkert að gera neitt í því, þetta bara fór að rúlla og silaðist upp í 11 mín, þá var staðan bara 2-4 fyrir okkur.

Þegar 10 mín voru eftir af fyrri var staðan 5-9 og höfðu Framstelpur nú greinlega ákveðið að drífa sig af stað, náðu góðu forskoti, 8-13 og 5 mín eftir, Ásta Birna komin inná, sá að Guðrún Þóra var borgaralega klædd í áhorfendastúku, þar gat að líta nokkra áhorfendur og var glatt á hjalla .

8-15 þegar Karen Knúts skoraði úr eigin víti, hún er alveg ótrúleg, hún fékk högg á hausinn um miðjan fyrri og fór af velli að drepast í enninu, en jafnaði sig vel og kom inná undir lok fyrri og lét eins og ekkert væri, hún er ekki vælin stelpukornið, það má nú segja, og aftur fékk hún óblíðar móttökur þegar hún braust tignarlega gegnum vörn, högg í andlitið en sá ekki á því, hún lætur ekki deigan síga og virðist ekki óttast að maskarinn og meikið fari út um allt, neibb ei beibb, ekki Karen.

Íris ver fullt af skotum,walesbúum og írum,  Karen skorar úr hraðaupphlaupi og staðan rokin upp í 8-17 og enn eitt mark eftir fyrir hlé, 8-18 eða sumsé 10 marka munur og leikurinn búinn þannig lagað.

Í seinni var sama uppi á teningum, Ásta Birna skorar 8-19, og eftir 5 mín var 8-21 og yfirburðir okkar algerir, lítið fyrir dómarana að gera og Brynjar tók uppá því að skipta (krossa)  þegar han hljóp til baka til að gá hve Anton Gylfi væri snöggur að fatta, en Toni var alveg soðinn og þeir stóðu sömu megin heila sókn, en hann sá mig brosa og hefndi sín með að setja hendina fyrir linsu myndavélarinnar þegar ég var að mynda þreklegt gegnumbrot og Ásta Birna verður að kenna öðrum en mér um að ekki fengust myndir af því atviki..  En þetta er nú sagt í léttum dúr og engum hugsaður skaði af.

10- 23 og helsta vopn HK inga er markvörður þeirra sem varði alveg ljómandi vel allan leikinn, tók mörg hraðaupphlaup og skot af línu og virkilega erfið skot, hélt HK ingum frá því að lenda 20 mörkum undir, grínlaust.

12-25 og Stella skorar 12-26 og seinni hálfnaður.   Þegar 10 mín voru eftir var staðan 15-29 og Einar farinn að hvíla  Stellu og Karen, Anna Gulla fékk langþráð tækifæri, Eva og Anna María einnig, Helga Vala kom í markið og liðið breyttist töluvert þarna seinnipartinn í leiknum.  Ekki dró það úr sóknarþunga okkar og lokatölur urðu  20-32 fyrir Framstelpur.

Þá erum við komnar aftur í annað sæti,  og allt í góðum gír, líður nú að næsta stórviðburði sem er Eimskipsbikarinn, úrslitaleikur  FRAM – VALUR í mfl. Kvenna á laugardaginn kemur.
  Þangað til skulum við safna kröftum, liði, spiki og hverju sem kann að koma að notum og mætum í FRAM húsið í fyrirpartý, með andlitsmálun, bolum og smákökum, söng og tralli.
    Takið þennan dag frá fyrir þetta, verðum að styðja okkar stelpur, en meira um það seinna.


myndir úr leiknum:     kv, bbb




                   þeir virtust ófullir,  alveg satt !























                Takk fyrir.... Anton  !















« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l