Fram mætir Leikni í annarri umferð í Riðli 2 í Deildabikarnum í kvöld. Leikurinn hefst kl. 21:00 í Egilshöll.
Upphaflega átti leikurinn að vera á laugardaginn. Í staðinn geta stuðningsmenn Fram einbeitt sér að því að styðja kvennalið félagsins í handbolta í Bikarúrslitunum þann dag.
Liðin hafa þegar mæst einu sinni á árinu. Það var í Reykjavíkurmótinu þegar Almarr Ormarrsson tryggði Fram 1-0 sigur.
Leiknismenn mættu Fjölni í sínum fyrsta leik og töpuðu 3-4 á meðan Fram vann Selfoss 3-1.
Staðan í riðli 2