Strákarnir í 4.flokkur karla urðu um helgina bikarmeistari í handbolta. Það var strax ljóst að drengirnir höfðu undirbúið sig gríðarlega vel fyrir leikinn og mættu mjög vel stemmdir í leikinn. Morgunmatur með foreldrum og þjálfurum í FRAMhús fór greinilega vel í hópinn og stemmingsfundur í vikunni skilaði sér greinilega. Strákarnir byrjuðu leikinn af millum krafti og litu aldrei um öxl, andstæðingarnir UMFA sáu aldrei til sólar og lokatölur leiksins urðu 12 marka sigur FRAM 29 - 17 .
Arnar Freyr Bestur !
Það er erfitt að taka einhverja út allir skiluðu sínu og liðið lék í heildina vel. Arnar Freyr var þó valinn maður leiksins og var vel að þeim titli kominn, átti frábæran leik bæði í vörn og sókn. Gríðarlega flott umgjörð var í kringum leikinn þar sem allir leikmenn voru kynntir inn á völlinn, þjóðsöngurinn leikinn, keppnisdúkurinn á gólfin, toppdómarar og ríflega 400 áhorfendur fylgdust með leiknum.
Ármann ánægður með bikarinn
Tekið við verðlaunum

Siggi saki, siggi saki hey

Stefán Darri, Birkir og Freysi
FRÁBÆRT DRENGIR OG TIL HAMINGJU!