Content

5.3.2010

Jón Guðni valinn í A-landslið Íslands!

Í dag var tilkynntur landsliðshópur Íslands sem mætir Færeyjum & Mexíkó í vináttuleikjum þann 21. og 24. mars næstkomandi. Þar er í fyrsta sinn Jón Guðni Fjóluson.

Jón Guðni hefur verið með fast sæti í U-21 landsliðinu síðasta árið eða svo og því kemur þetta ekkert á óvart að Óli Jó skuli vilja sjá drenginn með A landsliðinu.

Við óskum Jón Guðna til hamingju með þennan árangur og hvetjum alla stuðningsmenn FRAM til að fjölmenna í Kórinn þann 21. mars kl. 12:00 til þess að styðja við bakið á okkar manni (og svo auðvitað landsliðinu líka).


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l