Það var óneitnalega gaman að vera FRAMari í gærkvöldi eftir glæsilegan sigur strákanna á Val 26-25 í hörkuleik.
Valsmenn leiddu nánast allan leikinn en með seiglu og baráttu náðum við loks að brjóta ísinn og komast yfir undir lokinn. Liðið leit vel út í gær allir leikmenn voru á tánum og lögðu sig fram, börðust eins og einn maður alveg til loka leiks sem var virkilega gaman að sjá.

Magnús varði gríðarlega vel í leiknum og var sennilega besti maður liðsins í gær.
Flott strákar og við viljum sjá meira af þessu.
Næsti leikur er við HK fimmtud. 18. mars. kl. 19:30 í Digranesi.
Fleiri myndir á vef Jóa Kristins
www.123.is/frammyndir
ÁFRAM FRAM