Content

13.3.2010

FRAM í Makedóníu - fylgst verður með gangi leiks á facebook síðu handknattleiksdeildar FRAM, uppfært, hálfleikur

Meistaraflokkur kvenna er nú í Skopje í Makeóníu til að leika þar í áskorendakeppni Evrópu við HC Metalurg.

FRAM fór á fimmtudagsmorgun til Skopje.  Flogið var til London, þaðan til Sofiu í Bulgaríu.  Þaðan var síðan ekið til Skopje.  Ferðalagið tók um það bil 20 tíma.  Ein taska týndist.

Fyrri leikurinn fer fram í dag kl. 18:00 að staðartíma sem er væntanleg 17:00 að íslenskum tíma.

Seinni leikurinn fer síðan fram á morgun sunnudag og er aftur leikið kl. 18:00 að staðartíma.

Reynt verður að fylgjast með gangi mála í leikjunum hér á síðunni og einnig á facebook síðu handknattleiksdeildar FRAM.

Staðan er  6 - 6 eftir 12 mín

Staðan í hálfleik er 14 - 13 fyrir FRAM

Áfram FRAM


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l