13.3.2010
Glæsilegur FRAM sigur 29 - 26 í Makedóníu
Stelpurnar unnu rétt í þessu glæsilegan sigur á Metalurg frá Makedóníu í fyrri leik liðanna í áskorendakeppni Evrópu. Leikurinn var heimaleikur FRAM og var greinilega mjög spennandi eftir lýsingunni á Fésinu að dæma.
Seinnileikurinn verður leikinn á morgun á sama tíma á sama stað og verður honum lýst á fésinu og hér á síðunni eftir bestu getu.
Til hamingju stelpur
Markaskor í dag.
Fram 29 : Metalurg 26
Stella 8/2 Karen 7/5 Ásta 5 Guðrún 5 Hildur 2 Pavla 1 Sigurbjörg 1
Íris Björk varði 24 skot
« Til baka |
Senda á Facebook