Valinn hefur verið úrtakshópur til æfinga fyrir u – 16 ára landslið kvenna, sem mun æfa 29. – 31. mars n.k. Verkefnastjórar eru þeir Hilmar Guðlaugsson og Sigurgeir Jónsson.
FRAM á sex leikmenn í þessum úrtakshópi en það eru þær, Elva Þóra Arnardóttir, Hafdís Iura, Íris Kristín Smith, Jóhanna Björk Viktorsdóttir, Karólína Vilborg Torfadóttir og Kristín Helgadóttir.
Þessar stelpur urðu um daginn bikarmeistarar HSÍ í 4 fl. kvenna.
Þá hafa þrjár þeirra, þær Elva Þóra, Hafdís og Karólína leikið sína fyrstu leiki með meistaraflokki kvenna í vetur.
Það er því ljóst að framtíð kvennahandboltans er björt hjá FRAM
Til hamingju með þetta stelpur.