Eins og alltaf er mikið að gerast hjá okkur í FRAM en til að gefa ykkur smá hugmynd um hvað er hægt að gera fram að helgi og um helgina þá er hér dagskráin næstu daga.
Fimmtudagur 18. mars.
Egilshöll kl. 18:00-19:00 Mfl.ka. í fótbolta ætlar að mæta á æfingu með öllum yngriflokkum FRAM í Egilshöll. Þar ætla strákarnir að æfa með krökkunum, miðla af reynslu sinni og eiga skemmtilega stund með framtíðar leikmönnum FRAM. Frábært framtak hjá strákunum.
Digranes kl. 19:30. Mfl.ka. í handbolta leikur við HK í N1 deildinni, þar verður allt lagt undir.
Föstudagur 19. mars.
FRAMhús kl. 18:45 2. fl.ka. í handbolta leikur sinn síðasta leik í deildinn á móti ÍBV. Strákarnir eru þegar búnir að tryggja sér deildarmeistaratitilin og fá örugglega bikar frá HSÍ í leiks lok.
Laugardagur 20. mars.
FRAMvöllur kl. 11:00 3. fl.ka. í fótbolta leikur á Reykjavíkurmótinu á móti Fylki.
FRAMhús kl. 12:00 3. fl.ka. í handbolta leikur á Íslandsmótinu á móti UMFA.
FRAMhús kl. 13:30 4. fl.kv. í handbolta leikur sinn síðasta leik í deildinn við Víking og geta með sigri tryggt sér deildarmeistaratitil.
FRAMvöllur kl. 14:00 Mfl.ka. í fótbolta leikur æfingleik við VIKING frá Færeyjum, virkilega spennandi að sjá þennan leik .
FRAMhús kl. 16:00 Mfl.kv. í handbolta leikur við Stjörnuna í N1-deildinni, örugglega hörkuleikur.
Sunnudagur 21. mars.
FRAMhús kl. 11:00 4. fl.ka. B2 í handbolta leikur við ÍR á Íslandsmótinu.
FRAMhús kl. 12:15 4. fl.ka. B í handbolta leikur við FH á Íslandsmótinu.
FRAMhús kl. 13.30 4. fl.ka. A í handbolta leikur við ÍR á Íslandsmótinu.
Fylkisvöllur kl. 17:00 2. fl.ka. í fótbolti leikur á Reykjavíkurmótin við Fylki.
Síðan er turnering hjá 5 og 6 fl. ka og kv í handbolta alla helgina.
6. fl.ka í KR heimili
6. fl.kv. í Fylkisheimili
5. fl.ka. í Valsheimili
5. fl.kv. á Selfossi
Mánudagur 22. mars
FRAMhús kl.19:30 Mfl. ka. í handbolta leikur við Hauka í N1-deildinn, drauma leikur og þá mæta allir.
Svo ef þú ert í einhverjum vafa hvað þig langar að gera á næstu dögum þá eru hér margar hugmyndir og það væri gaman að sjá sem flesta á þessum viðburðum. Ég áætla svona lauslega að um 500 iðkendur og sjálfboðaliðar frá FRAM muni koma að þessum leikjum á næstu dögum svo þið sjáið að það er líf í þessu 102 ára gamla félagi.
ÁFRAM FRAM !
Knattspyrnufélagið FRAM