Alfreð til liðs við meistaraflokk karla
Alfreð Finnsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokk karla út leiktíðina með Einari Jónssyni. Alfreð hefur verið þjálfari 6. og 5. flokks drengja í vetur og mikil ánægja er með hann hjá Fram. Alfreð þekkir því félagið vel en hann er gamalreyndur þjálfari þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur m.a. þjálfað meistaraflokk kvenna hjá Gróttu og ÍBV og gerði þær síðarnefndu m.a. að Íslandsmeisturum.
-------------------------------------------------------------------------------------
Aðalfundur handknattleiksdeildar
Á dögunum var haldinn aðalfundur handknattleiksdeildar. Fundurinn gekk vel fyrir sig og var góð mæting á fundinn. Að venju stjórnaði Sigurður Ingi Tómasson fundinum með ágætum og eftir að reikningar og skýrsla stjórnar voru samþykkt var ný stjórn kosin. Hana skipa miklir reynsluboltar, Ólafur Arnarson formaður, Reynir Stefánsson varaformaður, meðstjórnendur voru kosnir, Ragnar Lárus Kristjánsson, Arnkell Bergmann, Kolbeinn Finnsson, Hjálmar Vilhjálmsson, Jón Ásgeir Einarsson, Hergeir Elíasson, Sigurður Egill Þorvaldsson og Daði Hreinsson. Stjórnin hefur þegar haft fyrsta fund og ljóst að mikill hugur er í nýjum stjórnarmönnum.
Fyrrverandi stjórn er þökkuð vel unnin störf, en þeir fara þó ekki langt og ætla að starfa að hinum ýmsum verkefnum áfram fyrir félagið.