Meistaraflokkur kvenna lék í gær við lið Stjörnunnar í Íþróttahúsi FRAM við Safamýri. Með sigri í leiknum gat FRAM endanlega tryggt sér 2 sæti í deildarkeppninni og því heimaleikjarétt í 4-liða úrslitum í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn.
Það er skemmst frá því að segja leikurinn var hörkuspennandi allan tímann. FRAM hafði þó yfirleitt forystu 1 – 2 mörk. Í hálfleik var staðan 11 – 10 FRAM í vil.
Stjarnan jafnaði leikinn fljótlega og komst yfir 13 – 14. FRAM jafnaði leikinn aftur og komst yfir 22 – 20 þegar um 10 mínútur voru eftir af leiknum . Á síðustu 10 mínútunum þá seig FRAM betur frammúr og sigraði að lokum með 27 mörkum gegn 23 mörkum Stjörnunnar.
FRAM liðið var allt að spila vel, sérstaklega varnarlega. Sóknarlega var einnig margt gott þá að of mikið hafi verið um tæknifeila, sérstaklega í fyrri hálfleik.
Góður sigur á liði Stjörnunnar sem veitir FRAM gott veganesti í úrslitakeppnina sem hefst eftir páska.
Næsti leikur í deildinni er við FH í Kaplakrika, þriðjudaginn 23. mars 2010, kl. 19:30
Mörk FRAM skoruðu: Sigurbjörg 8, Hildur 6, Karen 4, Marthe 3, Anna María 2,Pavla 2, Guðrún Þóra 1, Steinunn 1.
Íris Björk stóð í markinu og varði 18 skot.
Mörk stjörnunnar skoruðu: Harpa Sif 5, Jóna Sigríður 5, Elísabet 4, Esther Viktoria 3, Aðalheiður 3, Alina 2 og Þórhildur 1.
Florentina stóð í marki Stjörnunnar og varði milli 15 og 20 skot.