30.3.2010
A - landslið kvenna - þrir leikmenn frá FRAM
A - landslið kvenna er nú statt í Bretlandi og leikur á morgun við heimakonur í Crystal Palace National höllinni í undankeppni EM.
Upphaflega voru fjórir leikmenn FRAM valdir í landsliðshópinn fyrir þennan leik og einnig seinni leikinn sem fram fer hér á landi, laugardaginn 3. apríl n.k.
Ásta Birna Gunnarsdóttir varð þó að draga sig út úr hópnum, vegna smávægilegra meiðsl sem hún varð fyrir í leiknum við Val á laugardaginn var. Það er þó vonast til að hún verði orðin leikfær þegar úrslitakeppni N1 deildarinnar hefst þann 9. apríl n.k..
Leikmenn FRAM í landsliðshópnum eru samt sem áður þrír, en það eru þær, Íris Björk Símonardóttir, Karen Knútsdóttir og Stella Sigurðardóttir.
Til gamans eru hér upplýsingar af heimasíðu HSÍ um það hvað þessir leikmenn hafa leikið marga leiki með A -landsliðinu.
Íris Björk hefur leikið 43 leiki og skorað 4 mörk (??)
Ásta Birna hefur leikið 26 leiki og skorað 42 mörk
Karen hefur leikið 7 leiki og skorað 19 mörk
Stella hefur leikið 14 leiki og skorað 35 mörk
Tilvalið er að skella sér í Laugardalshöllina á laugardaginn, 3. apríl 2010, og horfa á seinni leikinn sem verður kl. 14:00.
« Til baka |
Senda á Facebook