Í dag eru nákvæmlega 70 ár síðan fyrsti opinberi meistaraflokksleikur Fram í handbolta var leikinn í Íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar við Lindargötu 1.apríl 1940. Þar steinlágum við fyrir Íþróttafélagi Háskólans 34:12. Tveimur dögum áður, 30.mars, 1940 lék 2.flokkur karla fyrsta opinbera kappleik FRAMara í handbolta. Þá töpuðum við 28:11 fyrir Víkingi. Þessar heimildir höfum við frá Stefáni Pálssyni sagnfræðingi sem með annars skrifaði FRAM í 100 ár. Eins er hægt að lesa um fyrsta Íslandsmótið í handbolta sem haldið var 30. mars til 10. apríl í bókinn FRAM í 80 ár bls. 109 en við FRAMarar riðum ekki feitum hesti frá því móti.
Knattspyrnufélagið FRAM óskar handknattleiksdeild FRAM og ykkur öllum til hamingju með daginn.
Knattspyrnufélagið FRAM.