Nú í hádeginu var lið 3ju umferðar í N 1 deild kvenna kynnt. FRAM á fjóra leikmenn í liðinu að þessu sinni. Það eru markmaðurinn Íris Björk Símonardóttir, vinstri hornamaðurinn Marthe Sördal, hægri hornamaðurinn Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir og leikstjórnandinn Karen Knútsdóttir.
Karen var jafnframt valinn leikmaður 3ju umferðar N 1 deildarinnar.
Einar Jónsson var síðan valinn þjálfari 3ju umferðarinnar.
FRAM fór í gegnum 3ju umferðina í N 1 deildinni án þess að tapa stigi, þ.e. sigraði í öllum leikjunum átta. FRAM gerði í raun betur en það því að liðið sigraði í ellefu síðustu leikjum sínum í deildinni.
Stelpurnar og Einar eru vel að þessu komin enda staðið sig með mjög vel í vetur.
Til hamingju.