u-18 og u-20 ára landslið karla
Valinn hefur verið úrtakshópur u-18 ára landsliðs karla. Liðið mun æfa vikuna 9. – 18. apríl í Kórnum í Kópavogi.
Landsliðsþjálfari er Heimir Ríkarðsson
Við FRAMarar eru stoltir af því að eiga 2 leikmenn sem valdir voru í þennan flottahóp. Þeir sem voru valdir frá FRAM eru:
Arnar Birkir Hálfdánarson og Elías Bóasson.
Þá hefur verið valið u-20 ára landsliðs karla sem tekur þátt í undankeppni fyrir EM sem fram fer um næstu helgi á Íslandi í Laugardalshöll samhliða landsleikjum Íslands og Frakklands.
Leikirnir verða sem hér segir:
|
Föstudagur 16.apríl
|
Laugardagur 17.apríl
|
Sunnudagur 18. apríl
|
|
Serbía - Makedónía kl.14.00
|
Makedónía - Ísland kl.18.30
|
Svartfjallaland - Makedónía kl.13.00
|
|
Ísland - Svartfjallaland kl.16.00
|
Svarfjallaland - Serbía kl.20.30
|
Ísland - Serbía kl.15.00
|
Landsliðsþjálfarar eru Einar Guðmundsson og Einar Andri Einarsson.
Við FRAMarar eru stoltir af því að eiga 2 leikmenn í þessum framtíðar A -landsliðshópi Íslands. Þeir sem voru valdir frá FRAM eru:
Sigurður Örn Arnarson markvörður og Róbert Aron Hostert stórskytta.
Til hamingju drengir og gangi ykkur öllum vel.
Unglingaráð Handknattleiksdeildar FRAM.