Halldór Jóhann Sigfússon fyrirliði meistaraflokks karla í handbolta hefur gert nýjan 2ja ára samning við Fram. Halldór hefur verið einn af lykilmönnum liðsins undanfarin ár. Halldór er 32 ára uppalinn Akureyringur og spilaði með KA lengst af, auk þess að vera atvinnumaður í Þýskalandi í nokkur ár. Halldór hefur verið í Fram frá árinu 2007.
Það er því mikið gleðiefni að hafa tryggt sér starfskrafta Halldórs áfram enda ætlar meistaraflokkurinn sér á toppinn á nýjan leik.
Á myndinni sjá Ólafur Arnarson og Halldór við undirritun samningsins
Handknattleiksdeild FRAM