Þá er komið að þriðja leik FRAM og Vals í meistaraflokki kvenna í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.
Það verður að segjast eins og er að staða FRAM er ekki góð, búnar að tapa tveimur leikjum og þeim seinni illa. FRAM er sem sagt komið með bakið upp að hinum fræga vegg.
En það er klárt að stelpurnar eru ekki tilbúnar til þess að fara í sumarfrí í kvöld. Þær munu mæta á Hlíðarenda með það eina markmið að sigra og taka um leið eitt skref af þremur í átt að Íslandsmeistaratitlinum.
Það er einnig alveg klárt að það verður ekki auðvelt verkefni, en það er ekkert ómögulegt þegar þessar FRAM-stelpur ætla sér eitthvað.
Nú er aldrei miklivægara en að þið stuðningsmenn FRAM mætið á Hlíðarenda í kvöld og hvetjið FRAM til sigurs. Stelpurnar hafa skemmt okkur það oft í vetur með frábærum leikjum að þær eiga það inni hjá ykkur.
Ég get lofað ykkur því að að þær munu leggja sig 110% fram í leiknum.
Ég nýt þeirra forrréttinda að fá að vera með þeim á bekknum í kvöld eins og áður í vetur, og mun reyna að styðja stelpurnar eins og ég get.
Hvar verður þú ???
FRAM kveðja
Guðmundur Þór liðsstjóri