Content

26.4.2010

Sumarskóli FRAM sumarið 2010, skráning hefst 3. maí.

Sumarnámskeið FRAM í Grafarholti og Safamýri


SUMARNÁMSKEIÐ FRAM 2010 Grafarholt

Knattspyrnuskóli FRAM og Íþróttaskóli FRAM eru starfræktir í Grafarholti í sumar. Þar býður félagið upp á öruggt umhverfi og góða aðstöðu í hjarta hverfisins. Námskeiðin fara fram í og við Ingunnarskóla en ef veður er vont þá verða æfingar færðar inn í íþróttahús Ingunnarskóla. Knattspyrnuskólinn mun nýta sér sparkvöll við Ingunnarskóla og grassvæði við Þorláksgeisla. Handboltanámskeiðið er haldið í íþróttahúsi Ingunnarskóla.

 

 

ÍÞRÓTTASKÓLI  FRAM

Íþróttaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 5-10 ára sem hafa gaman af íþróttum og útivist.  Farið verður í fjölbreytta og skemmtilega leiki, hinar ýmsu íþróttagreinar kynntar og einnig verður farið í stuttar ferðir.  Skólinn verður rekinn samhliða knattspyrnuskólanum þannig að einstaklingar geta valið hvort þeir eru eingöngu í knattspyrnu eða vilja hafa mikla fjölbreytni. Hvert námskeið stendur í 2 vikur frá kl. 09:00-16:00 alla virka daga.  Jafnframt er boðið upp á hálfsdagsnámskeið frá kl. 09:00-12:00 og kl. 13:00-16:00. Hægt er að velja fyrir eða eftir hádegi,  einnig knattspyrnuskóla fyrir hádegi og íþróttaskóla eftir hádegi. Ekki verður boðið upp á heitan mat og þurfa börnin að koma með nesti.  Boðið verður upp á gæslu í Ingunnarskóla  frá kl. 07:45-09:00 og kl. 16:00-16:30.

 

Námskeið 1.  07 - 18. júní    09:00-16:00  (*)  (9 dagar)

Námskeið 2.  21 - 02. júlí     09:00-16:00       

Námskeið 3.  05 - 16. júlí     09:00-16:00

Námskeið 4.  19 - 23. júlí      09:00-16:00  (viku námskeið)

 

(*) Hægt verður að kaup 1 viku á fyrsta námskeiði vegna þess að skólarnir eru búnir á misjöfnum tímum.

 

 HANDBOLTASKÓLI FRAM

Handboltaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig.  Námskeiðið stendur í 1 viku, frá kl. 09:00-12:00  virka daga vikunnar. Kennarar eru íþróttamenntaðir og handboltaþjálfarar hjá FRAM.

 

Námskeið     16 - 20. ágúst  09:00-12:00            

 

KNATTSPYRNUSKÓLI FRAM

Knattspyrnuskóli FRAM er fyrir stráka og stelpur á aldrinum 5-12. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Mikil áhersla er lögð á leikformið hjá yngstu þátttakendunum en meiri sérhæfing og tækni hjá þeim eldri.  Hvert námskeið stendur í 2 vikur, frá kl. 09:00-12:00 alla virka daga vikunnar. Boðið er upp á gæslu frá kl.07:45 og er það innifalið í gjaldinu. 

 

Námskeið 1.  07 - 18. júní    09:00-16:00  (*)  (9 dagar)

Námskeið 2.  21 - 02. júlí     09:00-16:00       

Námskeið 3.  05 - 16. júlí     09:00-16:00

Námskeið 4.  19 - 23. júlí      09:00-16:00  (viku námskeið)

 

(*) Hægt verður að kaup 1 viku á fyrsta námskeiði vegna þess að skólarnir eru búnir á misjöfnum tímum.

 

 Skráning

Skráning hefst  3. maí og fer fram á skrifstofu Íþróttastjóra í Íþróttahúsi FRAM í síma 533-5600 alla virka daga frá kl. 09:00-16:00. Einnig er hægt að skrá og greiða á skrifstofu FRAM í Grafarholti Kirkjustétt í síma 587-8800.

Skráningu og greiðslu skal vera lokið áður en námskeið hefst. Námskeiðsgjöld má staðgreiða eða greiða með debet- eða kreditkortum.  Hægt er að skrá í síma ef greitt er með kreditkorti. 

Námskeiðsgjald í knattspyrnuskóla og íþróttaskóla ½ dagur er kr. 7000.-

Íþróttaskóli 09:00-16:00  kr. 14.000.-

Námskeiðsgjald í handboltaskóla er kr. 3500.-  (5 dagar).

Veittur er 10 % systkinaafsláttur og einnig er veittur afsláttur ef keypt eru fleiri en eitt námskeið. Innifalið í verið er: Gæsla, bolur, veisla í lok hvers námskeiðs og skemmtilegt námskeið unnið af fagfólki. 

Allar nánari upplýsingar um námskeið á vegum FRAM er hægt að fá í síma 587-8800/533-5600  milli kl 09:00 og 16:00 í Íþróttahúsi FRAM og í gegnum tölvupóst  toti@fram.is  og dadi@fram.is

 


SUMARNÁMSKEIÐ FRAM 2010 Safamýri

Knattspyrnuskóli FRAM og Íþróttaskóli FRAM eru starfræktir á íþróttasvæði FRAM v/Safamýri. Þar býður félagið upp á öruggt umhverfi og góða aðstöðu í hjarta borgarinnar. Námskeiðin fara fram á æfingasvæði FRAM en ef veður er vont þá verða æfingar færðar inn í íþróttahús félagsins.  Handboltanámskeiðið er haldið í Íþróttahúsi FRAM og næsta nágrenni ef veður er gott. 

 

 

ÍÞRÓTTASKÓLI  FRAM

Íþróttaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 5-10 ára sem hafa gaman af íþróttum og útivist.  Farið verður í fjölbreytta og skemmtilega leiki, hinar ýmsu íþróttagreinar kynntar og einnig verður farið í stuttar ferðir.  Skólinn verður rekinn samhliða knattspyrnuskólanum þannig að einstaklingar geta valið hvort þeir eru eingöngu í knattspyrnu eða vilja hafa mikla fjölbreytni. Hvert námskeið stendur í 2 vikur frá kl. 09:00-16:00 alla virka daga.  Jafnframt er boðið upp á hálfsdagsnámskeið frá kl. 09:00-12:00 og kl.13:00-16:00. Hægt er að velja fyrir eða eftir hádegi,  einnig knattspyrnuskóla fyrir hádegi og íþróttaskóla eftir hádegi. Ekki verður boðið upp á heitan mat og þurfa börnin að koma með nesti. 

Boðið verður upp á gæslu frá kl. 07:45-09:00 og kl. 16:00-16:30.

 

Námskeið 1.  07 -18. júní     09:00-16:00   (*)  (9 dagar)    

Námskeið 2.  21 - 02. júlí     09:00-16:00  

Námskeið 3.  05 - 16. júlí     09:00-16:00

Námskeið 4.  19 - 23. júlí     09:00-16:00 (viku námskeið).

 

 (*) Hægt verður að kaup 1 viku á fyrsta námskeiði vegna þess að skólarnir eru búnir á misjöfnum tímum.

 

HANDBOLTASKÓLI FRAM

Handboltaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 6-14 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig.  Námskeiðið stendur í 1 viku, frá kl. 09:00-12:00  virka daga vikunnar.  Kennarar eru íþróttamenntaðir og handboltaþjálfarar hjá FRAM.

 

Námskeið     16 - 20. ágúst  09:00-12:00            

 

KNATTSPYRNUSKÓLI FRAM

Knattspyrnuskóli FRAM er fyrir stráka og stelpur á aldrinum 5-12. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Mikil áhersla er lögð á leikformið hjá yngstu þátttakendunum en meiri sérhæfing og tækni hjá þeim eldri.  Hvert námskeið stendur í 2 vikur, frá kl. 09:00-12:00 alla virka daga vikunnar. Boðið er upp á gæslu frá kl.07:45 og er það innifalið í gjaldinu. 

 

Námskeið 1.  07 - 18. júní   09:00-12:00   (*)  (9 dagar)    

Námskeið 2.  21 - 02. júlí    09:00-12:00  

Námskeið 3.  05 - 16. júlí    09:00-12:00

Námskeið 4.  19 - 23. júlí    09:00-12:00   (viku námskeið).

 

 (*) Hægt verður að kaupa 1 viku á fyrsta námskeiði vegna þess að skólarnir eru búnir á misjöfnum tímum.

 

 

Skráning

Skráning hefst 03. maí og fer fram á skrifstofu Íþróttastjóra í Íþróttahúsi FRAM alla virka daga frá kl. 09:00-16:00.  Skráningu og greiðslu skal vera lokið áður en námskeið hefst. Námskeiðsgjöld má staðgreiða eða greiða með debet- eða kreditkortum.  Hægt er að skrá í síma ef greitt er með kreditkorti. 

Námskeiðsgjald í knattspyrnuskóla og íþróttaskóla ½ dagur er kr. 7000.-

Íþróttaskóli 09:00-16:00  kr. 14.000.-

Námskeiðsgjald í handboltaskóla er kr. 3500.-  (5 dagar).

Veittur er 10% systkinaafsláttur og einnig er veittur afsláttur ef keypt eru fleiri en eitt námskeið. Innifalið í verið er: Gæsla, bolur, veisla í lok hvers námskeiðs og skemmtilegt námskeið unnið af fagfólki. 

Allar nánari upplýsingar um námskeið á vegum FRAM er hægt að fá í síma 533-5600 milli kl 09:00 og 16:00 í Íþróttahúsi FRAM og í gegnum tölvupóst toti@fram.is.

Í von um gott samstarf í sumar

Þór Björnsson íþróttastjóri  FRAM

Daði Guðmundsson íþróttafulltrúi FRAM  Grafarholti



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l