Content

29.4.2010

Góður árangur hjá 4.fl kvenna

4.flokkur kvenna lauk á dögunum keppni þennan veturinn þegar við spiluðum í úrslitahelgi Íslandsmótsins sem fram fór í Austurbergi. Á leið okkar þangað höfðum við lagt lið FH á útivelli nokkuð örugglega. Stelpurnar sem léku í 2.deild í vetur unnu þar liðið sem endaði í 2.sæti í 1.deild. Í undanúrslitum spiluðum við á móti ÍR sem hafði endað í 3.sæti í 1.deildinni. Þar áttum við frekar slæman dag auk þess sem einn lykilmann vantaði vegna leikbanns. Leiknum liktaði með fimm marka sigri ÍR 24-19 þar sem staðan í hálfleik var 12-9 ÍR í vil. Eftir gríðarlega svekkjandi tap á móti ÍR tóku stelpurnar sig til og pökkuðu saman sterku liði ÍBV sem hafði tapað naumlega gegn Gróttu í undanúrslitum. Stelpurnar sýndu þar gríðarlegan karakter og unnu 11 marka sigur á ÍBV, 28-17. Bronsleikurinn var virkilega vel spilaður af stelpunum bæði í vörn sem sókn. Ég er sannfærður um það að eftir að hafa séð þann leik hjá Fram þá hafi Grótta prísað sig sælar með að Fram hafi ekki náð í úrslitin á móti þeim. Grótta vann ÍR síðan í úrslitaleiknum nokkuð örugglega og óskum við þeim til hamingju með titilinn.


Eftir að hafa lent í mótbyr í upphafi tímabils þar sem það varð okkar hlutskipti að spila í 2.deild eftir forkeppnina þá tóku stelpurnar sig á og náðu fínum árangri þennan veturinn. Við urðum Reykjavíkurmeistarar eftir sigur á ÍR í vítakeppni. Eftir að hafa haft nokkra yfirburði í leikjum okkar í 2.deild kláruðum við deildina með stæl og urðum deildarmeistarar í 2.deild. Einnig urðum við Bikarmeistarar fyrr í vetur með því að leggja FH í úrslitaleik  Það ásamt því að enda í 3.sæti í Íslandsmóti verður því að teljast fínasti árangur þrátt fyrir að við höfum ætlað okkur að taka þann titil líka.

 

Stelpurnar hafa tekið miklum framförum í vetur bæði sem einstaklingar og einnig sem lið. Þær lögðu mikið á sig og voru allar samstiltar að taka sig á eftir lélega byrjun sem skilaði sér í þessum fína árangri.

 

Nokkrar af stelpunum stigu sín fyrstu spor með meistaraflokki í vetur og er þess væntanlega ekki lengi að bíða að það geri fleiri. Sex af stelpunum hafa einnig verið við æfingar hjá undir 16 ára landsliðinu.

 

Þessar stelpur eiga framtíðina fyrir sér svo lengi sem þær eru tilbúnar að leggja mikið á sig.

Hér eru nokkrar myndir úr leiknum um 3. sætið á dögunum.




 

Sissi þjálfari 



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l