Um síðustu helgi fór fram lokamót 6. fl kv. í handbolta, leikið var á Akureyri . Stelpurnar úr Grafarholti gerðu góða ferð norður , skemmst er frá þvi að segja að frábær árangur náðist er B -lið vann deildina og A - lið fékk silfur á Íslandsmótinu en þessi lið hafa staðið sig einkar vel í vetur og var A- lið hársbreidd frá þvi að landa Íslandsmeistaratitlinum eftir harða keppni við HK. Sá leikur tapaðist með einu marki.. B lið vann deildina og tapaði einungis einum leik og sigraði alla aðra andstæðinga sína.
Var gerður góður rómur af ferðinni og allir léku á alls oddi , ekki síst þegar að Brynjuís var sleiktur með verðlaunapening um hálsinn áður en lagt var í hann heim í Grafarholtið.
Til hamingju stelpur, Ómar og Anna María þjálfarar , bikarinn kemur bara næst en umfram allt, þá gekk allt vel.

Silfurhafar HSÍ
Efri röð: Anna María, Ingunn Lilja, Aþena, Sólveig Svala, Esther Ruth, Ómar
Neðir röð: Svala Júlía, Heiðrún Dís, Harpa og Embla Dögg lukkudýr.

Deildarmeistarar í 6. fl.kv. B
Efri röð: Telma V, Ragnheiður Ósk, Þórhildur, Hafdís, og Elfa.
Neðri röð: Álfheiður María, Kristín, Ólöf og Hildur.