Content

30.4.2010

Fréttatilkynning frá Handknattleiksdeild FRAM

Handknattleiksdeild Fram hefur ráðið Reyni Þór Reynisson þjálfara meistaraflokks karla til næstu 2ja ára.

Reynir Þór stjórnaði liði Víkings (Víkings-Fjölni) í 1. deildinni á árunum 2006-2008. Hann skildi við Víkingsliðið með að koma þeim upp í efstu deild en var þar áður búinn að skila liðinu í undanúrslit bikarkeppninnar þar sem liðið féll úr keppni með dramatískum hætti í tvíframlengdum leik.

Reynir Þór tók við kvennaliði Fylkis þegar Íslandsmótið var rúmlega hálfnað seint í desember 2008. Hann stjórnaði liðinu áfram á nýafstaðinni leiktíð og skilaði liðinu í 5. sæti N1 deildarinnar sem er besta árangri í sögu liðsins.

Reynir Þór var á sínum tíma meðal bestu markvarða landsins og lék 48 A-landsleiki fyrir Íslands hönd. Sem leikmaður var Reynir Þór lykilmaður í sterku liði Fram á árunum 1996-1998 sem var þá undir stjórn Guðmundar Þ. Guðmundssonar núverandi landsliðsþjálfara.

Karlalið Fram átti erfitt uppdráttar framan af vetri en hafnaði í 6. sæti N1 deildarinnar með gríðarlega góðum endaspretti.


Hér má sjá þá Reyni Þór & Ólaf Arnarson handsala samninginn.

Handknattleiksdeild Fram býður Reyni Þór velkominn í Safamýrina á nýjan leik.



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l