Maí 2010
Ágætu Framarar
Þann 11. maí n.k byrjar boltinn að rúlla fyrir alvöru hjá okkur Frömurum með fyrsta leik í Íslandsmóti gegn ÍBV á Laugardalsvelli.
Það er alltaf mikil tilhlökkun í upphafi sumars og við sem stjórnum gangi mála fyrir utan leikvöllinn erum ekki síður spenntir en leikmenn og starfsfólk. Væntingar eru miklar og tilefnin eru mörg, þannig er fótboltinn.
Menn spá og rökræða um gengi og getu á fótboltavellinum, allt er það til gamans gert og gefur þessari dásamlegu íþrótt aukið vægi. Við höfum jú öll mikið vit á fótbolta. Við Framarar höfum okkar vonir og þrár eins og aðrir. Við þykjumst vita hvað við getum og áorkað. Aðalmálið þó í okkar huga er að við höfum náð ákveðnum stöðugleika undir stjórn Þorvaldar Örlygssonar og þeirri vinnu viljum við halda áfram. Við viljum meina að til þess verkefnis höfum við færasta þjálfara sem völ er á á Íslandi. Það eru algjör forréttindi að hafa slíkan fagmann í okkar röðum. Við Framarar hyggjumst byggja upp framtíðarlið með Þorvald við stjórnvölinn og vonandi verða komnir á okkar eigin heimavöll innan þriggja ára í Úlfarsárdal. Á meðan munum við leika á “hlutlausum” Laugardalsvelli og mynda okkar eigin heimavallastemningu Það höfum við gert undanfarin ár og munum gera með góðum árangri áfram.
Við höfum á að skipa frábærum hópi leikmanna sem skipa meistaraflokk Fram árið 2010. Vissulega hafa góðir drengir horfið á braut og óskum við þeim alls hins besta, en til okkar hafa einnig komið frábærir leikmenn eins og þeir Jón Gunnar Eysteinsson frá Keflavík og Tómas Leifsson frá Fjölni. Við bjóðum þá hjartanlega velkomna og væntum mikils af þeim í sumar. Framliðið er mjög ungt að árum og framtíðin er sannarlega okkar.
Það er mín trú að leikmannahópurinn hafi aldrei verið sterkari en nú og við stefnum hátt og vonumst til að gera betur en á síðustu leiktíð. Það er markmið okkar. Til að ná árangri í fótbolta þarf margt að ganga upp og mikilvægast er stuðningur okkar frábæru stuðningsmanna sem ég hvet til að flykkjast á bak við strákana og styðja í gegnum súrt og sætt. Ykkar stuðningur er ómetanlegur.
Geiramenn settu skemmtilegan blæ á síðusti leiktíð og eigum við von á þeim enn sterkari í ár. Frábært framtak þar.
Ég vil einnig hvetja alla Framara til að ganga í stuðningsmannaklúbbinn okkar Framherja, þar sem ýmis fríðindi bjóðast ásamt ómetanlegum stuðning við liðið og umgjörð þess. Nýr afreksstjóri okkar Jón Sigurðsson veitir allar upplýsingar vegna þess á netfanginu jon@fram.is eða í síma 8620308
Ég vil að lokum nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu sem koma að rekstri Fótboltafélagsins Fram, leikmanna og þjálfarateymis ásamt aðstoðarfólki, stjórn og starfsfólki aðalstjórnar, stjórnar FFR og starfsmanna ásamt ykkur stuðningsmenn góðir.
Hittumst á vellinum í sumar
Með fótboltakveðju
Lúðvík Þorgeirsson
Formaður Fram FFR