Content

10.5.2010

FRAM - ÍBV á morgun þriðjudag kl. 20:00 í Laugardalnum (UPPFÆRT!)

Pepsi-Deildin 2010
1. Umferð
Laugardalsvöllur þriðjudaginn 11. maí kl 20:00

Fram mætir ÍBV í fyrsta leik tímabilsins rétt eins og í fyrra. Fjölmennum á Laugardalsvöllinn og hvetjum okkar menn. Allir mæta í  bláu og látum í okkur heyra.

Áfram FRAM !

Fram vs. ÍBV

Eyjamenn eru "solid" fótboltalið sem stendur alltaf fyrir sínu og hefur lengst af leikið í Efstu Deild.  Eyjamenn hafa þrisvar unnið Íslandsbikarinn og fjórum sinnum unnið bikarinn.  Heimavöllur Eyjamanna er Þokulofti lævi blandin, þannig að þetta er það lið Íslands hvers leikjum er oftast frestað.

Fram var spáð 5. sæti af öllum og alls staðar. Fram hefur orðið ofar í Deild en spánni síðan Þorvaldur tók við liðinu. Þess skal getið að Fram var spáð 7. sæti 2007 og varð þá í 3. sæti.  Í fyrra var Fram spáð 5. sæti og varð liðið þá í 4. sæti.

Eyjamenn hafa tekið stórt upp í sig í vor og stefna á efri hlutann.  Fréttaritari ætlar að vera svo brattur að hafa nokkra trú þeim orðum Eyjamanna og spáir þeim 6. sæti. Þeim er þó yfirleitt spáð neðarlega eða í sætin fyrir ofan fallið.  Þeirra helsta viðbót í ár er Tryggði Guðmundsson sem sneri heim eftir langa dvöl í FH.  Ásgeir Aron kom frá Fjölni og Finnur Ólafsson frá HK og ættu að reynast vel. Á móti kemur að England og Úganda eiga enga fulltrúa í liði Eyjamanna, a.m.k. ekki þessa vikuna.  

Þjálfari ÍBV er jaxl í bak og fyrir, en þar fer gamli varnar-jaxlinn Heimir Hallgrímsson, en svo römm er jaxltign hans að hann er tannlæknir að mennt.  Heimir tók við liðinu eftir fallið 2006, kom því upp og hélt því nokkuð örugglega uppi í fyrra.

Framarar og Eyjamenn:

Steinar Guðgeirsson fyrrv. formaður Fram var í síðasta meistaraliði ÍBV árið 1998, sem og Birkir Kristinsson fyrrum markmannsþjálfari og markvörðurFram.  Báðir voru líka í meistaraliði Fram árið 1990.  Birkir er leikjahæsti leikmaður í sögu Efstu Deildar, lék yfir 300 leiki með Fram, ÍBV og svo ÍA. Jóhannes Atlason þjálfaði bæði lið, Fram 1984 í mfl. og ÍBV árið 1992. Ásgeir Sigurvinsson, besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar er Eyjamaður.  Hann þjálfaði Fram árið 1993.


Fyrri viðureignir:

Fram vann heimaleikinn 2-0 og gerði 1-1 jafntefli í Eyjum.  Það voru fyrstu leikir liðanna í fjögur ár.
Þetta var besta útkoma Fram gegn ÍBV í tvo áratugi, eða síðan Fram vann báða leikina 1993. 
Árin 1994-2005 fékk Fram aldrei meira en 3 stig gegn ÍBV.  Útkoman var þannig 2001, 2002, 2003 og 2005 en 1 stig 2000 og 2004.

Fram og ÍBV hafa háð 68 leiki í Efstu deild. Jafnræði hefur verið með þessum liðum.
Fram hefur unnið 27 leiki gegn 23 hjá ÍBV.  Liðin hafa gert 18 sinnum jafntefli. Fram hefur skorað 106 mörk gegn 97 mörkum Eyjamanna. 

Lið Fram:


Það eru allir heilir, þetta er því sennilega

Hannes í markinu

Daði og Sam bakverðir, Jón Guðni og Kristján miðverðir

 Jón Gunnar og Halldór Hermann fyrir framan vörnina
Almarr fyrir framan þá

og loks Tómas, Hjálmar og Ívar fremstir.



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l