Content

11.5.2010

2-0 sigur á ÍBV í fyrsta leik!

FRAM tók á móti ÍBV í kvöld á rennblautum Laugardalsvellinum. Byrjunarlið FRAM var nákvæmlega eins og spáðum um í gær. Hannes í markinu, Daði, Kristján, Jón Guðni & Sam í vörninni. Jón Gunnar, Halldór Hermann, Almarr á miðjunni. Ívar & Tómas á sitthvorum kantinum og svo Hjálmar frammi.

Það voru leikmenn FRAM sem byrjuðu leikinn mun betur og strax eftir 4 mínútur skoraði Tómas Leifsson sitt fyrsta deildarmark fyrir FRAM en hann átti þá lúmska fyrirgjöf frá hægri sem endaði í markinu. Ekki mikið markvert gerðist í fyrri hálfleik fyrir utan nokkur hálffæri sem bæði FRAM & ÍBV fengu.

Þegar 10 mínútur voru svo liðnar á síðari hálfleik þá skoraði Ívar Björns eftir vel heppnaða skyndisókn. FRAMliðið fékk nokkur færi til þess að bæta við þriðja markinu og en það tókst ekki.

Heilt yfir þá var þetta afar góður sigur hjá FRAM og gott að byrja mótið með þessum hætti.

Næsti leikur FRAM er gegn Breiðablik á sunnudag.


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l