Content

14.5.2010

Fram heimsækir Blika á sunnudag!

Breiðablik - Fram
Kópavogsvölllur
sunnudaginn 16. maí kl. 19:15

Fram heimsækir Breiðablik á sunnudag.  Leikurinn er forvitnilegur enda talsvert gengið á í innbyrðis leikjum félagana sl. misseri. Í fyrstu umferð vann Fram ÍBV 2-0 á meðan Blikar lutu 0-1 í gras gegn Keflavík.

Síðasti leikur gegn ÍBV


Fram mætti ÍBV líka í fyrsta leik 1990, 1993, 2005 og 2009.  Fram vann 4-0, 2-1, 3-0, og 2-0 í hin fyrri skiptin.

Fram vann fyrsta leikinn á Íslandsmótinu, rétt eins og 2004, 2005, 2008 og 2009. Annað árið í röð var 2-0 látið nægja en leikirnir 2004 og 2005 unnust 3-0.

Fram hefur ekki tapað fyrsta leik á Íslandsmóti síðan 2003, en Fram gerði jafntefli í fyrsta leik 2006 (0-0 gegn Víkingi Ólafsvík) og 2007 (1-1 gegn Val).

Tómas Leifsson var fjórar mínútur að gera sitt fyrsta Deildamark fyrir Fram.  Mark Ívars var hans fjórtánda fyrir Fram í Efstu Deild. Ívar gerði tvö mörk 2007, átta mörk 2008 og þrjú mörk 2009.

Fram hefur ekki tapað fyrsta leik á Íslandsmóti síðan 2003, en Fram gerði jafntefli í fyrsta leik 2006 (0-0 gegn Víkingi Ólafsvík) og 2007 (1-1 gegn Val).

Fram-Breiðablik


Annar leikur Fram á Íslandsmóti hefur aðeins unnist einu sinni þessi ár, og var það 2008 gegn HK (2-0). 

Annar leikurinn í ár er af erfiðari gerðinni, útileikur gegn Blikum á sunnudaginn kemur.

Eftir nokkurt hlé frá Efstu Deild birtust Blikar aftur 1991 og hafa liðin mæst tíu sinnum frá og með þeim tíma.  Fram hefur unnið nokkra heimasigra á þessum tíma en aðeins í eitt skipti hefur Fram unnið Breiðablik á Kópavogsvellinum, og það var árið 1995. Það ár tryggði Steinar Guðgeirsson, fyrrv. formaður Fram, sigur með 2 mörkum snemma leiks í 2-1 sigri. 

Árið 1991 varð 1-1 jafntefli, en það ár léku Blikar á sandgrasinu við Smárann.  Þorvaldur Örlygsson, núverandi þjálfari Fram, jafnaði fyrir Fram eftir hálftíma leik og þar við sat.

Þessi tvö lið hafa verið hnífjöfn allt síðasta ár.  Báðir deildaleikir þeirra 2010 enduðu með jafntefli.  Síðan hafa tveir síðustu leikir í útsláttakeppnum farið í framlengingu og vító.  Blikar eru aðeins betri vítaskyttur en Framarar skv. þessum tveimur leikjum.

Sl. þrjú ár hefur Fram gert tvö jafntefli við Blika á Kópavogsvelli, 2-2 árið 2008 og frægt að endemum 3-3 árið 2009. Fram hefur tapað einu sinni, 3-0, 2008.  Árið 2007 var leikurinn í lokaumferð og Jónas Grani Garðarsson varð fyrsti markakóngur Fram í 20 ár með því að gera 2 síðustu mörk sín í þeim leik.

Leikurinn í fyrra var afar sögulegur.  Blikar komust í 3-0 fyrir leikhlé en Framarar komu sér inn í leikinn þegar 20 mín voru eftir, með marki Sam Tillen úr vítaspyrnu.  Menn urðu heitir og Heiðar Geir og Jón Guðni gerðu tvö síðustu mörk leiksins. 

Það er merkilega oft rigning þegar þessi lið mætast á Kópavogsvelli.

Deildaleikir Fram og Breiðabliks á Kópavogsvelli frá síðasta sigurleik Fram eru sem hér segir:

2009 3-3 Sam Tillen, Heiðar Geir Júlíusson, Jón Guðni Fjóluson.
2008 0-3
2007 2-2, Jónas Grani Garðarsson 2
2001 0-1
2000 0-1
1999 1-1 Ívar Jónsson
1995 2-1 Steinar Guðgeirsson 2




« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l