Breiðablik & FRAM mættust á Kópavogsvellinum á sunnudagskvöldið og
endaði leikurinn með jafntefli 2-2 eftir að heimamenn höfðu náð tveggja
marka forystu.
Það er ekki hægt að segja annað en að leikurinn minnti margan FRAMarann óneitanlega mikið á leik þessara liða fyrir rúmu ári síðan á sama velli. FRAMliðið lenti undir og vann sig svo tilbaka.
Það voru Guðmundur Magnússon & Ívar Björnsson sem skoruðu mörk FRAM. Mark Ívars var einstaklega fallegt þar sem hann tók við boltanum á lofti í vítateignum og snéri sér við og smellti honum í hornið.
FRAMliðið var heilt yfir betri aðilinn í þessum leik og hefði kannski með smá heppni getað náð í öll þrjú stigin.
Upplýsingar um byrjunarlið FRAM (sem var óbreytt frá síðasta leik) og annað má finna hér í
leikskýrslunni á KSÍ.is.
Næstu leikur FRAM er gegn Grindavík á fimmtudagskvöldið. Hvetjum alla góða FRAMara til að mæta og styðja við bakið á strákunum!