Fram - Grindavík
20. maí. kl. 19:15 Laugardalsvöllur
Eftir tvær umferðir Pepsi deildinni þá hefur er FRAM liðið í 3. sæti en Grindavík vermir botnsætið. FRAM sigraði ÍBV í fyrstu umferð 2-0 en gerði svo 2-2 jafntefli gegn Blikum í næsta leik á eftir.
Grindavík hinsvegar hefur tapað báðum sínum leikjum í sumar. Í fyrstu umferðinni töpuðu þeir með fjórum mörkum gegn engu er þeir mættu Stjörnunni. Síðan mættu þeir Keflavík og töpuðu þar með einu mark eftir að hafa pakkað í vörn í 90 mínútur.
Fyrri viðureignir:
Sú var tíðin að stuðningsmenn Fram litu leiki gegn Grindavík sérstöku hornauga, enda gekk Fram bölvanlega með þetta lið frá fyrstu viðureignum 1995 fram á þessa öld. Það var ekki fyrr en á fimmta keppnistímabili sem fyrsti sigurinn kom (2000, 3-1 í Laugardalnum, eftir níu viðureignir í deild án sigurs). En frá og með 2000 hefur það gerst í fimm skipti af átta (2000, 2001, 2003, 2004 og 2008) að liðin hafa unnið sitt hvorn leikinn í Deildinni. Þannig fór síðast 2008 en þá unnu liðin útileikina gegn hvort öðru. Grindvíkingar höfðu betur 2002 og 2005 en Framarar 2008-2009. Liðin hafa mæst á hverju ári frá 1995 ef 2006-2007 eru undan skilin.

Eftir að Fram hafði ekki unnið Grindavík heima í tvö skipti, vann Fram í fyrra 4-3 eftir að hafa lent 3-1 undir. Hannes varði mjög vel í stöðunni 1-3 sem réði miklu þegar upp var staðið. Almarr Ormarrsson gerði tvö fyrstu mörkin, og það var Auðun Helgason (nú Grindavík) sem jafnaði fyrir Fram. Hjálmar Þórarinsson tryggði Fram sigurinn, rétt eins og hann gerði í leik liðanna í 16-liða úrslitum Bikarsins rétt áður, 1-0 fyrir Fram.
Það voru Rikki Daða og Andri Fannar Ottóson sem tryggðu Fram þar síðasta heimasigur 2-1 árið 2004. Fram hefur alls unnið fjóra heimaleiki og gert tvö jafntefli, en tapað alls sex sinnum heima.
Fyrsti útisigur Fram gegn Grindavík kom árið 2001, í sjöttu tilraun. Reyndar kom þriðji útisigurinn í fyrra– sá var jafnframt fjórði sigur Fram í röð gegn Grindavík í Deildinni, sem er félagsmet gegn Grindavík. Tölfræði Fram á Grindavíkurvelli eru þrír sigrar, þrenn jafntefli og sex tapleikir.
Leikmenn beggja:
Alexander Veigar Þórarinsson kom til Fram frá Grindavík 2009. Auðun Helgason lék með Fram 2008-2009 en leikur nú með Grindavík.
Paul McShane (nú Keflavík) lék með Fram 2008-2009 en þar áður um árabil í Grindavík. Óðinn Árnason (nú Þór) lék með Fram 2007-2008 en var í Grindavík 2003-2006.
Þá lék Ómar Torfason, sem varð Íslandsmeistari með Fram 1988 og bikarmeistari 1985 & 1989, með Grindavík undir lok ferils síns sem leikmaður.
Líklegt byrjunarlið:
Við eigum ekki von á miklum breytingum á byrjunarliðinu frá síðastu tveimur leikjum þó svo að Guðmundur Magnússon hafi átt góða innkomu á sunnudagskvöldið. Þetta verða því líklegast Hannes Þór, Daði, Kristján, Jón Guðni, Sam, Jón Gunnar, Halldór Hermann, Almarr, Tómas L., Ívar Bj., Hjálmar.
Við hvetjum alla stuðningsmenn FRAM til þess að fjölmenna á Laugardalsvöllinn og láta heyra vel í sér!
Áfram FRAM!