Content

21.5.2010

Góður sigur á Grindvíkingum!

FRAM sigraði Grindavík í gærkvöldi en þessi lið mættust á Laugardalsvellinum, heimavelli FRAM. Þorvaldur þjálfari gerði ekki neinar breytingar á byrjunarliði FRAM frá fyrstu tveimur leikjum mótsins.

Leikurinn sem slíkur var hin fínasta skemmtun þar sem markverðir beggja liða fóru hreinlega á kostum á köflum. Hannes Þór markvörður átti 3-4 topp markvörslur þar sem hann á tímabili í fyrri hálfleik og svo aftur í þeim síðari.

Ívar Björnsson var eins og í síðustu tveimur leikjum, í hörku formi og skoraði fyrra markið á 36. mín eftir að hafa fengið laglega stungusendingu og slapp einn í gegn og kláraði færið afar vel. Hans þriðja mark í jafn mörgum leikjum.

Það var svo varamaðurinn Hlynur Atli Magnússon sem kom inn á 80. mín og sjö mínútum síðar átti kappinn gott skot af 25-30 metra færi sem endaði í markinu eftir að hafa haft örlitla viðkomu í einum varnarmanna Grindvíkinga. Hans fyrsta deildarmark FRAM og kom það á afar góðum tíma til þess að róa taugar stuðningsmanna FRAM sem voru á leiknum.

Maður leiksins í gærkvöldi var hinsvegar án efa Hannes Þór. Topp frammistaða!

Næsti leikur FRAM er gegn Fylki í Árbænum á mánudagskvöldið næstkomandi og hefst leikurinn kl. 19:15.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla stuðningsmenn FRAM til að mæta þar og hvetja strákana.




« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l