Content

22.5.2010

Fram heimsækir Fylki á mánudagskvöld!

Fylkir-Fram
4. umferð
Árbæjarvöllur mánudaginn 24. maí 2010 (annar í hvítasunnu)


Fylkir og Fram hafa byrjað mótið ágætlega, Fram er með sjö stig en Fylkir sex. Árbæingar töpuðu í Keflavík á fimmtudag á meðan Fram lagði Grindavík heima.  Aðeins Keflvíkingar hafa byrjað betur, með fullt hús stiga.

Aðrir leikir hafa verið skv. föstum liðum hjá Fram og Fylki.  Fram vann ÍBV heima þriðja árið í röð og gerði þriðja jafnteflið við Blika í röð (fimmta ef bikarkeppnir eru taldar með.  Fylkir gerði vel gegn sprækum Selfyssingum í 1. umferð og vann svo Stjörnuna (eins og vant er) heima í Árbænum.

Fyrri viðureignir

Ólafur Þórðar stýrði Fram til 4 stiga gegn Fylki árið 2007, m.a. í 3-1 sigri í Laugardalnum.  Fram fylgdi þessu eftir 2008 undir stjórn Þorvaldar Örlygssonar og vann báða leikina 3-0.  En áður en Óli tók við Fram átti Fram í nokkru basli með Fylki  og hafði ekki unnið leik gegn þeim frá 2001. Í fyrra gerðu liðin jafntefli í Laugardalnum en Fylkir vann í Árbæ en Fram svaraði með 2-0 sigri í 8-liða úrslitum Bikarsins.

Liðin mættust hins vegar fyrst 1983 í 1. Deild og gerðu tvö jafntefli. 

Fram vann svo báða leikina (1-0 og 3-0) þegar Fylkir lék fyrst í Efstu Deild 1989 en hefur ekki leikið það eftir nema einu sinni, árið 2008.

Fram hefur tvisvar unnið á Árbæjarvelli og þurfti bronslið Fram í bæði skiptin, 1989 og 2008. 

Annars hafa úrslitin verið sem hér segir,

Fram-Fylkir ártal heima úti, stig Fram

1983    0-0 2-2  2 stig
-----------------------
1989    1-0 3-0     6 stig
-----------------------
1993    5-0 0-3     3 stig
-----------------------
2000     1-2 0-1  0 stig
2001    3-0 2-4  3 stig
2002    2-3 3-3  1 stig
2003    1-2 1-3  0 stig
2004    1-1 0-1  1 stig
2005    1-2 1-1  1 stig
-----------------------
2007    3-1 1-1  4 stig
2008    3-0 3-0     6 stig
2009    0-0 1-2  1 stig


Fram hefur því unnið sjö sigra, sjö sinnum hafa liðin gert jafntefli en Fylkismenn eiga 10 sigra.

Mörkin

Ívar Björnsson hefur sett 3 mörk fyrir Fram og er markahæstur í Deildinni ásamt Halldóri Orra Björnssyni Stjörnumanni.  Jóhann Þórhallsson kemur á hæla þeirra (ásamt þremur öðrum) en hann  hefur sett tvö mörk fyrir Fylki.

Stemmingin fyrir leik

 Eins og alltaf getur brugðið til beggja vona í leikjum þessara liða. Leikirnir á Árbæjarvelli eru oft hníf jafnir og hver mistök eru dýr.


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l