Content

23.5.2010

FRAM stelpurnar sóttu sín fyrstu stig í Grafarvoginn

Mfl. Kvenna í fótbolta heimsótti Fjölni í Grafarvoginn á föstudagskvöldið og sótti þar sín fyrstu stig á sínu fyrsta Íslandsmóti í tæp 18 ár.

Mikið jafnræði mun hafa verið með liðunum í leiknum en hvorugu liðinu tókst að skora og því fór sem fór, markalaust jafntefli var niðurstaðan.

Einn af ljósmyndurum fram.is var á staðnum og tók nokkrar myndir sem við erum búnir að setja á vefinn. Myndirnar má finna hér.

Næsti leikur hjá FRAM stelpunum er á fimmtudagskvöldið 27. maí næstkomandi en þá kemur ÍR í heimsókn í Safamýrina en leikurinn hefst kl. 20:00.

Við hvetjum alla stuðningsmenn FRAM til að mæta.


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l