25.5.2010
2-2 í Árbænum - Hjálmar skoraði 2!
FRAM heimsótti Fylkir í gærkvöldi í Árbæinn í gærkvöldi. Þorvaldur þjálfari gerði eina breytingu frá FRAM liðinu en Hjálmar datt út og Hlynur Atli kom inná miðjuna. Almarr færði sig því framar á völlinn. Annað var óbreytt.
Það var ekki búið að spila í nema rétt rúma mínútu þegar heimamenn fengu vítaspyrnu eftir að Jón Guðni hafði brotið klaufalega á einum leikmanni Fylkis. Albert Ingason tók vítið og skoraði. Staðan því orðinn 1-0 og leikurinn varla byrjaður.
Þegar líða fór á fyrri hálfleikinn þá átti FRAMliðið nokkrar ágætar sóknir og hefðu kannski getað minnkað muninn með smá heppni en í staðinn tókst Fylkismönnum að bæta við öðru marki á 30. mín. Þeir fengu aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi FRAM. Hár boltinn inn í teiginn og þar gerist umdeilt atvik sem við eigum eftir að sjá í sjónvarpinu til þess að meta betur en sumir vilja meina að 2-3 leikmenn Fylkis hafi hindrað Hannes Þór í því að komast í boltann. Þetta endaði allavega með því að Einar Pétursson, leikmaður Fylkis fékk auðveldan skalla í opið mark og staðan orðinn 2-0 og þannig var staðan í hálfleik.
Síðari hálfleikur fór ágætlega á stað en FRAMliðinu gekk illa að skapa sér opinn marktækifæri það kom því ekki á óvart að Þorvaldur gerði breytingar á 58. mín en það að það yrði þreföld skipting kom mörgum á óvart. Ívar, Almarr & Jón Gunnar fengu allir að hvíla sig og inn komu Hjálmar, Joe Tillen og Guðmundur M. Jón Guðni skipti þá við Hlyn sem fór í miðvörðinn.
Það voru svo föstu leikatriðin sem báru árangur því 5 mínútum fyrir leikslok fékk FRAM hornspyrnu sem Hjálmar tók og einhvern veginn endaði sú hornspyrna í markinu og staðan orðinn 2-1 og einungis nokkrar mínútur eftir. Fylkismenn urðu þarna nokkuð taugaveiklaðir og þegar ca. 1 mínúta var eftir af uppbótartímanum fékk FRAMliðið svo aðra hornspyrnu sem Jón Guðni tók. Þar var Hjálmar mættur á fjærstönginni og skallaði boltann inn af mjög stuttu færi.
Enn og aftur tókst því FRAM liðinu að vinna sig inn í leikinn eftir að hafa lent undir. Þetta gerðist í 4-5 leikjum í fyrrasumar (t.d. Breiðablik á útivelli, Grindavík heima, Valur úti og fl.). Einnig á móti Blikum fyrir skömmu.
Næsti leikur FRAM er í VISA bikarnum gegn ÍR þann 2. júní á Laugardalsvellinum.
Við vekjum sérstaklega athygli á því að búið er að færa heimaleikinn gegn KR en hann átti að fara fram 29. maí. Í staðinn verður hann 10. júní. kl. 19:15. Þetta er vegna landsleiks Íslands gegn Andorra.
« Til baka |
Senda á Facebook